Minjasafnið á Mánárbakka
Á Mánárbakka á Tjörnesi er minjasafn sem hentar vel ef fólk nennir ekki að skoða mörg minjasöfn á landinu. Þarna er „allt það helsta” sem svo lifnar við í frásögn Aðalgeirs sem fer með gesti um og segir sögu hlutanna, hver átti þá og til hvers þeir voru notaðir. Eldmóður og óþrjótandi áhugi liggja að baki öllu starfinu og það lyftir frásögninni í hæðir, hvort sem við skoðum kaffikvörnina sem Ingibjörg malaði kaffið hans Jóns Sigurðssonar forseta eða gamla, handsnúna þvottavél. Á Mánárbakka er tjaldstæði, einnig veðurathugunarstöð og þar hefur japanska ríkið haft rannsóknarstöð norðurljósa síðan 1984.
— MINJASAFNIÐ Á MÁNARBAKKA — HÚSAVÍK — FERÐAST UM ÍSLAND — Margir hafa haft samband og við viljum gjarnan heyra frá fleirum í ferðaþjónustunni.
.
— MINJASAFNIÐ Á MÁNARBAKKA — HÚSAVÍK — FERÐAST UM ÍSLAND — Margir hafa haft samband og við viljum gjarnan heyra frá fleirum í ferðaþjónustunni.
.