Grána bistro – Íslands besti eftirréttur #Ísland

Grána bistro sauðárkrókur króknum Jón Daníel Jónsson veitingastaður besti eftirréttur á íslandi kristinn sandra björk
Systkinin Kristinn og Sandra Björk

Grána bistro – Íslands besti eftirréttur

Grána bistro og Gránubúð er í gamla kaupfélagshúsinu á Sauðárkróki eins og sýningin um Örlygsstaðabardaga 1238 og endurnýjunin hefur tekist sérlega vel.

Systkinin Kristinn landsliðskokkur og Sandra reka staðinn. Faðir þeirra, Jón Daníel Jónsson, rak áður Kaffi Krók, en lætur nú börnunum eftir að reka Gránu bistro og það er ekki í kot vísað að koma til þeirra, hér er allt með miklum skagfirskum sóma.

Hér hefur ekkert hráefni verið flutt yfir hálfan hnöttinn, heldur kemur það meira og minna allt „úr héraði“. Það segir til sín í eldamennskunni, því að allt bragðast ferskt og bragðmikið. Kartöflurnar koma frá Hofsstöðum, Burrata osturinn er framleiddur af Mjólkursamlaginu, grænmetið frá Laugamýri í Lýtingsstaðahreppi, lambakjötið skagfirskt, rækjur úr rækjuvinnslunni og hægt er að fá ostaplatta með Feyki, Reyki, Gretti og Mozzarella sem allir eru framleiddir á Króknum

GRÁNA BISTRÓSKAGAFJÖRÐUR —  FERÐAST UM ÍSLAND

.

Í handverksbúðinni, sem kallast Gránubúðin, er lögð áhersla á handverk heimafólks.
Lambakebabspjót

Lambakebabspjót með aïoli, súrsuðum rauðlauk, paprikukremi, salthnetum. Miðausturlensk krydd gefa tóninn.

Skagfirskt Burrata

Burrata með sýrðum tómötum, basil og basilolíu. Burratan líkist mozzarella, en er mun rjómakenndari og himnesk.

Hólableikja

Hólableikja með brokkolí, kartöflusmælki og grænmeti með rækjusósu úr rækjuvinnslunni.

Súkkulaðikaka með berjum og rjóma og besti eftirréttur á Íslandi: bökuð ostakaka með hindberjakrami og dulce de leche

Súkkulaðikaka með berjum og rjóma og bökuð ostakaka með hindberjakrami og dulce de leche (karameliseraðri mjólk). Ostakakan er besti eftirrétturinn sem við höfum fengið í ferðalaginu

Grána Bistró. Bökuð ostakaka með hindberjakrami og dulce de leche (karameliseraðri mjólk). Ostakakan er besti eftirrétturinn sem við höfum fengið í ferðalaginu (og höfum við nú fengið þá marga góða)

GRÁNA BISTRÓSKAGAFJÖRÐUR —  FERÐAST UM ÍSLAND

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Ömurleg framkoma eigenda Hressingarskálans

Ömurleg framkoma eigenda Hressendaskálans

Hressingarskálinn er eflaust lang-fínasti businessstaðurinn í Reykjavík í matsölu og kaffisölu. Þar er fullt frá morgni til kvölds og eigendur svo stórir með sig, að þeir köstuðu a.m.k. tólf fastagestum út, sem drukkið hafa þar kaffi í áratug, sumir lengur, og gerðu allt að kr. 80-100 þúsund kr. viðskipti á ári eður meira. Ágreiningsefni var, að fyrirtækið mátti ekki vera að því að taka frá borð handa þessum gestum sínum. Það er alltaf munur að kunna sig í veitingamennskunni - sérstaklega þegar efnin eru nógu mikil.

Rice Krispies bananakaka frá Hrafnhildi

Rice Krispies bananakaka frá Hrafnhildi. Ein af kvenfélagskonunum í Gnúpverjahreppi sem komu með kaffimeðlætið góða var Hrafnhildur Ágústdsdóttir. Rice Krispies kökur eiga alltaf við og eru borðaðar upp til agna

Konfektterta

Konfektterta. Á meðan ég ritstýrði blaði Franskra daga fékk ég oft saumaklúbba til að vera með uppskriftir í blaðinu. Einu sinni voru þar Fáskrúðsfjarðarkonur í Félagi austfirskra kvenna. Sigurbjörg frænka mín Bjarnadóttir bakaði Konfekttertu og kom með. Alveg stórfín terta sem ber nafn með rentu.