Humarveisla Önnu Rósu
Í upphafi ársins vorum við á Indlandi, sama dag og við komum heim var hugmyndin að bruna beint að veislustýra í sextugsafmæli Önnu Rósu vinkonu okkar. Það fór hins vegar þannig að vélinni frá Indlandi til Katar seinkaði svo við misstum af tengifluginu og þar af leiðandi afmælinu mikla.
Hjónin Anna Rósa og Kiddi erum mikið matfólk og margir þekkja hjá þeim grillaða humarinn og humarsósuna góðu sem slær allar aðrar út.
— ANNA RÓSA — VEISLUSTJÓRAR — INDLAND — HUMAR — SMÁKÖKUR — EFTIRRÉTTIR — HNÍFSDALUR — ÍSAFJÖRÐUR —
.
„Ég klippi af himnuna undir humrinum og pensla ólífuolíu á hann þessi var það stór að ég grillaði hann í 5 mín á 200°C ef hann er minni þá er nóg að grilla í 3 mín ef humar er grillaður of lengi þá verður hann (linur – drullulegur).
Humarsósa
4 væn hvítlauksrif
1 msk smjör
1 1/2 tsk Aromat
safi úr 1/2 sítrónu
1 msk saxað estragon (fáfnisgras)
2 1/2 dl rjómi
Bræðið smjör í potti, saxið hvítlaukinn smátt og setjið í smjörið uns hann verður glær, þá aromatið og látið malla pínustund.
Bætið sítrónusafa saman við, látið suðuna koma upp og bætið rjómanum og estragoni saman við.
Sykurpúðar og sýrður rjómi
1 lítil dós ananaskurl
1 lítil dós mandarínur
3 dl sýrður rjómi
1 1/2 dl sykurpúðar, klipptir í bita
Látið vökvann renna af ananas og mandarínum
Blandið öllu saman í skál
Látið standa í nokkrar klukkustundir í ísskáp, eða yfir nótt
Skreytið með söxuðu suðusúkkulaði
Bóndakökur
300 g smjörlíki
450 g hveiti
300 g sykur
110 g kókosmjöl
3 msk. sýróp
1 og 1/2 tsk sódaduft (matarsódi)
2 egg
Allt sett í skál og hnoðað
Mótið sívalar lengjur
Skipið niður í ca 1 cm. bita
Raðið á plötu og þrýsið létt á hvern bita með buffhamri til að fá rétta munstrið (alveg nauðsynlegt ) bakað við 175-180°C í ca 9 til 10 mín
Dressingin
9 msk góð ólífuolía
3 msk hvítvínsedik
2-3 tsk Dijon sinnep
salt og pipar eftir smekk sykur á hnífsoddi
2 hvítlauksrif, marin
Öllu nema olíunni blandað saman og þeytt vel í skál. Olíunni blandað hægt saman við, látin renna í bunu í blönduna og þeytt.
„Þessi uppskrift er stór ég helminga hana yfirleitt”
–
— ANNA RÓSA — VEISLUSTJÓRAR — INDLAND — HUMAR — SMÁKÖKUR — EFTIRRÉTTIR — HNÍFSDALUR — ÍSAFJÖRÐUR —
—