Gulrótaterta Betu

Gulrótaterta Betu elísabet reynisdóttir næringarfræðingur beta reynis gulrótakak hollustukaka
Gulrótaterta Betu

Gulrótaterta Betu

Elísabet Reynisdóttir hefur þróað og betrumbætt þessa undurgóðu gulrótartertu. Bragðmikil gulrótaterta með kaffinu.

GULRÓTATERTURGULRÆTUREPLITERTURBETA REYNIS

.

Gulrótaterta Betu

Gulrótarterta Betu

2 egg
100 g brætt smjör
1 dl hrásykur
2 dl rifin epli
4 dl rifnar gulrætur
1 dl möndlumjöl
1 dl kókosmjöl
1 dl hveiti
1 tsk engiferduft
½ tsk kanill
1 tsk Allrahanda
1 tsk negull
1 tsk lyftiduft
safi úr einni lime

Smjörkrem:
150 g flórsykur (um 1 1/2 b)
150 g rjómaostur
100 g mjúkt smjör
1/3 tsk salt
rifinn börkur af einu lime.

Tertan:
Þeytið vel saman eggjum og sykri.
Bætið við smjöri, gulrótum, eplum, mjöli, hveiti, kryddum, lyftidufti og limesafa og hrærið saman.
Smyrjið hringlaga form 22 cm og hellið deiginu og sléttið.
Bakið við 175°C í 35 mínútur.

Krem:
Hrærið öllu vel saman og smyrjið yfir tertuna þegar hún er orðin köld.
Borið fram með léttþeyttum rjóma og hamingju.

.

GULRÓTATERTURGULRÆTUREPLITERTURBETA REYNIS

— GULRÓTATERTA BETU REYNIS —

.

Hluti af hráefninu í gulrótatertuna

.

GULRÓTATERTURGULRÆTUREPLITERTURBETA REYNIS

— GULRÓTATERTA BETU REYNIS —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Allir bjóða öllum – Potluck party – Pálínuboð

sumargrill

Allir bjóða öllum - Potlock party - Pálínuboð. Hin svokölluðu Pálínuboð þekkja margir. Það eru boðin þar sem gestir koma með veitingarnar - allir bjóða öllum til veislu. Allsendis er óvíst að einhver sérstök Pálína eigi heiðurinn að nafninu. Líklegra er að hún Pálína með prikið hafi orðið kveikjan að nafninu*. 

Marineraður fiskur Diddúar

Marineradur fiskur

Marineraður fiskur Diddúar. Vó hvað þessi réttur er spennandi og passar vel á hlaðborð eða sem forréttur. Hentar þeim sem eru í tímahraki, fínt að útbúa réttinn daginn áður. Hér er uppskriftin eins og söngdrottningin sendi hana :)