100 fm íbúð til leigu við Lindargötu

0
Auglýsing
Útsýni úr stofu/borðstofu til suðurs. Skjólgóðar suðursvalir

100fm fjögurra herbergja, björt íbúð á fjórðu hæð við Lindargötu til leigu.

Tvö stór herbergi og þriðja minna, undir súð. Ný eldhúsinnrétting með nýrri eldavél og nýjum bakaraofni.

Íbúðin var öll tekin í gegn fyrir fáum árum. Nýtt gler, ný gólfefni, nýjar lagnir, nýjar skjólgóðar suðursvalir og annað tekið í gegn.

Auglýsing

Íbúðin er laus.
Ekki lyfta í húsinu.
Hússjóður innifalinn.
Rafmagn ekki innifalið.
Gæludýr ekki leyfð.

Aðeins reglusamir, ábyrgir, snyrtilegir og reyklausir leigjendur koma til greina.
Meðmæli frá fyrri leigusala.
Leiga: 400.000 á mánuði
Sendið póst á albert.eiriksson@gmail.com
.
Ný eldhúsinnrétting, ný eldavél og nýr bakaraofn
Tvö stór herbergi

 

Lítið herbergi undir súð með þakglugga, þar innaf er geymsla.
Björt og opin stofa og borðstofa
Í baðherberginu er baðkar og stór sturta

.

Fyrri færslaDásamlegt messukaffi Dómkórsins
Næsta færslaHvít pizza (sósulaus) – Pizza bianca