Spænsk saltfiskhrísgrjónapanna

Saltfiskhrísgrjónapana ektafiskur saltfiskur elvar hauganes spánn spánskur matur
Saltfiskhrísgrjónapana

Spænsk saltfiskhrísgrjónapanna

Mörg okkar tengja paellu við Spán. Þó þessi saltfiskpanna teljist ekki paella minnir hún óneitanlega á þann góða þjóðlega rétt. Eins og áður er það gæða saltfiskur frá Ektafiski.

🇪🇸

5/7 Miðjarðarhafið – Spánn

🇪🇸

EKTAFISKURSALTFISKURPAELLASPÁNNHAUGANESMIÐJARÐARHAFIÐ

🇪🇸

 

Saltfiskhrísgrjónapanna

400 g grjón (Risottó eða Arabic)
300 g saltfiskur
1/2 b gróft saxaður blaðlaukur
1 stór paprika, skorin í strimla
2-3 hvítlauksrif, söxuð smátt
4-5 msk ólífuolía
1 ds tómatar
1-2 lárviðarlauf
steinselja
1/2 – 1 l vatn
fiskikraftur
pipar

Steikið papriku og blaðlauk í olíu á pönnu, bætið við hvítlauk.
Setjið grjónin saman við og veltið þeim upp úr olíunni áður en tómötum,og kryddum er bætt við.
Hrærið vel og bætið við vatninu smátt og smátt (ca dl í einu).

Saltfiskhrísgrjónapana. Færslan er unnin í samvinnu við Ektafisk

🇪🇸

EKTAFISKURSALTFISKURPAELLASPÁNNHAUGANESMIÐJARÐARHAFIÐ

SPÆNSK HRÍSGRJÓNASALTFISKPANNA

— VEFVERSLUN EKTAFISKS —

🇪🇸

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Döðlubrauð með apríkósum

Döðlubrauð með apríkósum. Í sunnudagsbíltúr fyrir skömmu var komið við hjá Stínu Ben og Gunna Ben. Eins og oft áður hjá þeim hjónum sá vart í borðið fyrir heimabökuðu kaffimeðlæti. Þetta döðlubrauð með apríkósum bragðaðist einstaklega vel með nettri smjörklípu á.

Ofnbakaður heill hvítlaukur – mjúkur og sætur

Ofnbakaður heill hvítlaukur - mjúkur og sætur. Í hinni stórfínu búð Matarbúri Kaju á Óðinsgötu fæst heill lífrænt ræktaður hvítlaukur (reyndar er allt grænmetið þar lífrænt ræktað). Hvítlaukur er sko ekki sama og hvítlaukur. Hvítlaukur bakaður í ofni verður sætur og mjög mjúkur. Hann má svo nota að vild í alla þá rétti sem hvítlaukur er góður í.