Saltfiskur frá Lissabon
Steinvör frá Kolfreyjustað bauð okkur í saltfiskrétt, í forrétt var hún með kóngssveppi og byggbrauð. Hún tók vel í beiðni mína um uppskrift og smá texta:
Þennan saltfiskrétt fékk ég fyrir nokkrum árum á veitingastað í hinni dásamlegu borg Lissabon. Ég var svo hrifin og fékk uppskriftina hjá kokkinum sem fannst að sjálfsögðu íslenskur saltfiskur besti saltfiskurinn. Þetta er einstaklega einfaldur réttur og er gott að elda hann í matarboðum því maður þarf ekki að standa í mikilli eldamennsku og getur notið þess að spjalla við gestina. Mikilvægt er að prófa saltfiskinn áður, hvort hann er nægilega útvatnaður. Taka smá bita af þykku stykki og setja það t.d. örstutt í örbylgjuna og smakka. Ef hann er of saltur er ekkert annað að gera en að setja hann í vatn í nokkrar klukkustundir.
— STEINVÖR — SALTFISKUR — LISSABON — KOLFREYJUSTAÐUR — ÓLÍFUR —
🇵🇹
Saltfiskur frá Lissabon
Útvatnaður saltfiskur
Ólífuolía
Hvítlauksrif og fullt af þeim, allavega 10 á mann. Má bæði hafa þau með hýðinu eða ekki, einfaldlega það sem kokkinum finnst betra.
Ólífur, og nota góðar ólífur en ekki bragðlausar. Miða við ca 6 ólífum á mann.
Setjið fiskinn í eldfast mót, hellið ólífuolíu yfir og mikið af henni. Gott ef hún þekur fiskinn en það þarf samt ekki. Bætið hvítlauknum og ólífum með í fatið. Hafið í ofninum í ca hálftíma á 180C, það sést þegar ólífuolían fer að sjóða. Fiskurinn verður svo mjúkur og góður svona soðinn í ólífuolíunni.
Sigga frænka útfærði réttinn svo þannig að hún setur líka sólþurrkaða tómata með og það er líka mjög gott.
Best er að hafa með þessu soðnar kartöflur og ólífuolían af fiskinum er einfaldlega notuð sem sósa með þessu.
🇵🇹
— STEINVÖR — SALTFISKUR — LISSABON — KOLFREYJUSTAÐUR — ÓLÍFUR —
🇵🇹🇵🇹