Sólarpönnukökur
Sólarkaffi er drukkið þegar sólin skín aftur niður í byggð eftir skammdegið. Slíkt tilhald hefur tíðkast í janúar eða febrúar um allt land nema á Suðurlandi, en er almennast í þröngum fjörðum vestanlands og austan. Eftir að kaupstaðir tóku að myndast varð sólarkaffið sumstaðar að einhverskonar byggðarhátið eða átthagadegi brottfluttra. Sólarkaffi má vel kalla nútímatilbrigði við hina upphaflegu miðsvetrarhátið í tilefni sólhvarfa.*
🌞
— PÖNNUKÖKUR — FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR — SÓLSKINSTERTA — RABARBARASULTA – BLÁBERJASULTA — FÁSKRÚÐSFJARÐARÞJÓÐSÖGUR —
Íslendingar sem ekki sjá sólina í nokkrar vikur eða mánuði á hverjum vetri gera sér gjarnan dagamun þegar hún fer að skína aftur. Við sem erum alin upp við sólarpönnukökur vitum að með þeim byrjar nýtt tímabil birtu, tilhlökkunar og gleði. Þessari mynd fylgir engin uppskrift, í hana notaði ég heilhveiti og spelt (2 hl og 1 hl), mjólk, salt, matarsóda, olíu, mjólk, kardimommur og vanillu – en komst að því að ég átti engin egg. Ákvað að gera tilraun og bakaði pönnukökurnar án eggja og viti menn, það er vel hægt. Eggjalausar pönnukökur með ávaxtasalati, bláberjasultu og þeyttum rjóma. S’il vous plaît !
🌞
Sólardagarnir í Fáskrúðsfjarðarhreppi.
Á mínum æskuslóðum á Fáskrúðsfirði var sólarkomu fagnað með pönnukökum á hverjum bæ. Eðlilega er sólardagurinn ekki sá sami bæ frá bæ.
Berunes 4. febrúar
Þernunes 30. janúar
Hafranes 11. febrúar
-gamli bærinn 8. febrúar
Kolmúli 11. febrúar
Vattarnes
-Steinhúsið 8. janúar
-Dagsbrún 18. janúar
Kolfreyjustaður – sést allt árið
Kolfreyja – sést allt árið
Lækjamót 10. janúar
Höfðahús 7. janúar
Brimnesgerði 20. janúar
Brimnes 21. janúar
Kappeyri 24. janúar
Gestsstaðir 28. janúar
Höfðatún 27. janúar
Hólagerði 27. janúar
Dalir 11. febrúar
Tunga 8. febrúar
Sævarendi 11. feb
Eyri 5. febrúar
Víkurgerði 4. febrúar
Vík 6. febrúar
Hvammur 2. febrúar
Hafnarnes -sést allt árið
Á Búðum sést sólin fyrst í Skólabrekku 9 þann 21. janúar en sést í öllum bænum 28. janúar.
Á Eyri í Reyðarfirði sést sólin 9. febrúar.
— PÖNNUKÖKUR — FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR — SÓLSKINSTERTA — RABARBARASULTA – BLÁBERJASULTA — FÁSKRÚÐSFJARÐARÞJÓÐSÖGUR —
🌞
*Saga daganna eftir Árna Björnsson
🌞
— PÖNNUKÖKUR — FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR — SÓLSKINSTERTA — RABARBARASULTA – BLÁBERJASULTA — FÁSKRÚÐSFJARÐARÞJÓÐSÖGUR —
🌞🌞