Auglýsing
ÍTALÍA ÍTALSKUR MATUR EPLAKAKA Eplaterta ítalía ítölsk eplakaka furuhnetur kaffimeðlæti miðjarðarhafið terta kaka epli
Ítölsk eplaterta – Bragðmikil og mjúk – Ó það er svo gaman að baka.

Ítölsk eplaterta, bragðmikil og mjúk 

Bragðmikil og mjúk eplaterta. Maður er svo vanur því að það sé kanill í eplakökum að ég marg fór yfir uppskriftina til að athuga hvort ekki ætti að vera kanill – en svo er ekki. Í uppskriftinni stendur fimm græn epli en þar sem ég átti bara fjögur (stór) lét ég það duga. Ó það er svo gaman að baka.

🍏

EPLATERTURÍTALÍA

🍏

Ítölsk eplaterta

5 græn epli
safi úr einni sítrónu
1/2 b sykur (eða minna)
1 tsk vanilla
1 tsk kardimommur
1/3 tsk negull
5 egg
2 1/2 b heilhveiti
1/2 tsk salt
120 g smjör, brætt
4 msk góð olía
1 1/2 tsk lyftiduft
50 g furuhnetur

Takið utan af eplunum og skerið þau í þunnar sneiðar, bætið við sítrónusafa og ca helmingnum af sykrinum – blandið saman. Brjótið eggin í aðra skál, bætið við restinni af sykrinum og þeytið vel saman. Bætið við bráðnu smjöri, vanillu, kardimommum, negul, heilhveiti, salti, lyftidufti og olíu og blandið vel saman. Loks er eplunum bætt saman við. Setjið í smurt form, stráið furuhnetunum yfir og bakið í um 40 mín. við 170°

Eplaterta
Ítölsk eplaterta

🍏

EPLATERTURÍTALÍA

— ÍTÖLSK EPLATERTA —

🍏

Auglýsing

2 athugasemdir

  1. mm gerði þessa um daginn en breytti henni bara í hollari útgáfu og lét hunang með 3 tsk af kanil í staðin fyrir sykurinn,vínsteinsduft fyrir lyftiduft og slatta af rúsínum og notaði gróft spelt í staðin fyrir hveiti og brædda kókosolíu í staðin fyrir smör, og pecanhnetur í staðin fyrir furuhnetur, ótrúlega góð kaka , elska síðuna þína!

Comments are closed.