Auglýsing
Supa rauðrófusúpa Borsch RAUÐRÓFUR RÚSSLAND SÚPA
Rauðrófusúpa

Borsch – rússnesk rauðrófusúpa. Ætli frægasta rússneska súpan hljóti ekki að vera borsch, já ekki bara í Rússlandi heldur víðar í austrinu. Það er eins með þessa súpu eins og svo margt annað, það eru til margar útgáfur af Borsch-súpu.

SÚPURRAUÐRÓFURRÚSSLAND

Auglýsing

Borsch – rússnesk rauðrófusúpa

1 laukur
1 msk olía
ca einn l vatn
kjötkraftur
1 lítið hvítkálshöfuð, saxað
4-5 kartöflur, skornar í bita
1 stór gulrót, skorin í bita
4-5 rauðrófur, skornar í bita
1 lárviðarlauf
2 msk tómatmauk
3-4 hvítlauksrif, söxuð
salt
sýrður rjómi

Saxið laukinn og léttsteikið í olíunni. Bætið við vatni, kjötkrafti, hvítkáli, kartöflum, gulrót, rauðrófum, lárviðarlaufi, tómatmauki, hvítlauk og salti. Látið sjóða í ca 30 mín. Berið fram með sýrðum rjóma.

.

— RAUÐRÓFUSÚPA —

.