Pekanpæ. Það er nú gaman að segja frá því að á topp tíu yfir mest skoðuðu uppskriftir síðasta árs eru þrjár hráfæðistertur. Hér er enn ein dásemdin sem allir(eða langflestir) eiga eftir að elska – guðdómlega gott.
Pekanpæ
Botn:
2 dl pekanhnetur
2 dl valhnetur
1/4 tsk salt
1 dl kókosmjöl
2 1/2 dl döðlur (saxaðar gróft og lagðar í bleyti í 30 mín)
Fylling:
2 1/2 – 3 dl döðlur, lagðar í bleyti í amk klst
3 dl pekanhnetur
1 dl kókosolía, fljótandi
2 tsk vanillu extrakt
1 tsk kanill
1/4 tsk múskat
smá salt
Botn: Setjið pekanhnetur, valhnetur, salt, kókosmjöl og döðlur í matvinnsluvél og maukið dável. Setjið hring af bökunarformi á tertudisk og „deigið“ þar í, þjappið vel og látið fara aðeins upp með hliðunum.
Fylling: Setjið allt í matvinnsluvél (nema 1 dl af pekanhnetum) og maukið mjög vel. Þynnið með vatninu af döðlunum ef þarf. Setjið yfir botninn og skreytið með pekanhnetum. Geymið í ísskáp í ca 4 klst og þá er hún alveg tilbúin 🙂 Skreytið með restinni af pekanhnetunum og litfögrum ávöxtum.