Vínberjaterta með pistasíum
Ó! það er svo gaman að baka. Baka, baka, baka 🙂 Kannski ekki mjög algengt að hafa vínber, pistasíur og marsipan í einni og sömu tertunni. Amk var ég aðeins tvístígandi hvort ég ætti að prófa, en ég sé ekki eftir því. Óskaplega bragðgóð terta og eiginlega betri daginn eftir.
— VÍNBER — PISTASÍUR — TERTUR — MARSIPAN —
.
Vínberjaterta með pistasíum
150 g smjör, lint
1 dl sykur
rifinn börkur af einni appelsínu
1 msk appelsínusafi
1 tsk vanillu extrakt
1 dl góð olía
4 egg
300 g vínber, steinhreinsuð og skorin í tvennt
150 g marsipan, skorið í 1×1 cm bita
3 dl hveiti
3 dl möndlumjöl
2 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
Ofan á:
1-2 msk sykur
safi úr 1/2 appelsínu
safi úr 1/2 sítrónu
1 dl pistasíur, saxaðar gróft
smá vatn
smá salt
flórsykur til að strá yfir
Hrærið í nokkrar mínútur í hrærivél: smjöri, sykri, appeslínuberki, appelsínusafa og vanillu. Bætið við olíu og eggjum (einu í einu), þá hveiti, möndlumjöli, lyftidufti og salti. Bætið loks við marsipani og vínberjum og blandið saman við með sleif eða sleikju.
Bakið við 170° í 10 mín, lækkið þá í 160° og bakið áfram í 35 mín.
Á meðan kakan bakast:
Stráið sykri á heitan pott og látið hann brúnast (ljósbrúnn) í örstutta stund, bætið við salti, vatni, appelsínu- og sítrónusafa sjóðið niður í nokkrar mínútur. Slökkvið undir, bætið við pistasíuhnetunum og hellið yfir tertuna þegar hún er nýkomin úr ofninum.
Látið kólna og sáldrið flórsykri yfir.