Kaffimeðlæti í fermingarveisluna
Heimagerðar veitingar í fermingarveislum eru alltaf hlýlegar, þó að vissulega sé þægilegast að fá þær sendar heim. Aftur á móti er ekki gaman að taka á móti gestunum með sveittan skallann. Góð skipulagning er því höfuðatriði. Fyrst þarf að ákveða hvað á að bjóða upp á og vert að hafa í huga að fjöldi sorta er ekki sama og gæði. Hentugast og best er að hafa fáar, en góðar! Valið er því mikilvægt.
— FERMINGAR —VEISLUR — TERTUR —
.
Best er að hafa það sem maður er vanur, er einfalt og veit að klikkar aldrei. Marens brotinn niður í þeyttan rjóma með hinu og þessu brakandi sælgæti og ávöxtum er til dæmis eitthvað sem öllum finnst gott og hver sem er getur útbúið. Til dæmis Kókosbolludraumur eða Marengsskál
Margir fá hjálp frá vinum og vandamönnum og þá er best að ákveða réttina eða terturnar í samráði við þá, helst eitthvað sem maður hefur prófað hjá þeim og veit að er ljúffengt. Mikilvægt er að það komi fram í veislunni hverjir hjálpuðu til, svo að maður eigni sér ekki allan heiðurinn sjálfur.
Ef prófa á eitthvað nýtt, er nauðsynlegt að hafa gert prufu, svo að ekkert geti farið úrskeiðis. Hér eru nokkrar hugmyndir að kaffimeðlæti.
1 Skinkubrauðterta (í stað skinku má nota lax)
4.Hráfæðisterta, amk eina góða. Leyfa sem flestum að prófa þetta góðgæti
9. Saltfisksnittur með hvítlauk
10. Kornflexkökur
11. Draumaterta
12. Döðluterta með jarðarberjarjóma
SJÁ EINNIG: FERMINGAR —VEISLUR — TERTUR —
.