Kínóasalat með lime – fer vel í munni og maga

Kínóasalat með lime glúteinlaust tómatar KÍNÓA GLÚTENLAUST
Kínóasalat með lime – fer vel í munni og maga

Kínóasalat með lime

Það er nú meira hvað kínóa fer vel í maga, já bæði í munni og maga. Hollt og gott og ætti að vera sem oftast á borðum. Kínóa er glúteinlaust.

.

KÍNÓASALÖTGLÚTEINLAUST

.

Kínóasalat með lime

2 b kínóa
4 b vatn
3-4 tómatar, skornir í báta
1 lítill rauðlaukur, saxaður
1/2 chili, saxað smátt
2 hvítlauksrif, söxuð
1/2 rauð paprika, söxuð
1/2 græn paprika
safi úr einni lime
rifinn börkur af einni lime
1 tsk kúmín
1/2 b saxað kóríander
salt og pipar

Sjóðið kínóa í vatni í um 15 mín, látið kólna. Blandið saman við tómötum, rauðlauk, chili, hvítlauk, paprikum, limesafa, limeberki og kryddum. Látið standa í amk 2 klst. við stofuhita áður en er borðað.

Kínóasalat með lime
Kínóasalat með lime

.

KÍNÓASALÖTGLÚTEINLAUST

— KÍNÓASALAT MEÐ LIME —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.