Sítrusapríkósumarmelaði

Marmelaði - Sítrusapríkósumarmelaði sítrónur ingveldur g ólafsdóttir ingveldar g listaháskólinn mötuneyti
Sítrusapríkósumarmelaði

Sítrusapríkósumarmelaði

Útvarpskonunni ljúfu, Ingveldi G. Ólafsdóttur er margt til lista lagt og er vel þekkt fyrir að galdra fram veislumat úr svo að segja engu. Hún er afar nýtin á matarafganga eitthvað sem margir gætu tekið sér til fyrirmyndar. Frétti af bragðgóðu marmelaði hjá Ingveldi og hún tók ljúflega í beiðni mína um uppskriftina

„Appelsínumarmelaðið er eitthvað sem ég þróaði upp úr uppskrift sem ég fékk i eldhúsi útvarpsins. Ég minnkað t.a m. sykurskammtinn þar sem ég er ekki hrifin af dísætum sultum og marmelöðum. Og bætti grape-inu við og jók aprikósuhlutann. Mér finnst sykurinn undantekningarlaust taka bragðið fra ávöxtunum/berjunum ef hann er i jöfnum hlutföllum við ávextina/berjunum. Verður og auk þess ferskara. En það er engin konungleg saga né hrakfallabalkssaga a bak við uppskriftina, bara eitthvað sem undantekningarlaust öllum finnst gott” segir útvarpskonan geðþekka.

— INGVELDUR GMARMELAÐIAPPELSÍNURAPRÍKÓSUR

.

Marmelaði Ingveldar G. appelsínur apríkósur greip grape
Ingveldur G. Ólafsdóttir

Sítrusapríkósumarmelaði

3 appelsínur
1 sítróna
1 greip
einn poki af þurrkuðum apríkósum eða um 200 g
500 g sykur

Skerið endana af ávöxtunum og hendið, skerið restina af þeim í ekkert of litla bita. Setjið í skál og hellið köldu vatni yfir. Látið liggja í bleyti yfir nótt eða c.a. átta tíma. Hakkið áxextirna og setjið í pott ásamt sykri. Sjóðið allt heila gillimojið í ca 20 mín við meðalhita. Áxextirnir eru misstórir og missúrir þannig að ég smakka maukið áður en ég helli því úr pottinum og bæti við smá sykri ef þurfa þykir.
Þegar öllu þessu er lokið er ávaxtamaukið fært yfir í krukkur. Hreinar og þurrar og allt það.

.

— INGVELDUR GMARMELAÐIAPPELSÍNURAPRÍKÓSUR

— SÍTRUSAPRÍKÓSUMARMELAÐI —

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.