Sírópslengjur – renna út eins og heitar lummur

sírópskökur Sírópslengjur – renna út eins og heitar lummur árgangur 1966 Grunnskóli fáskrúðsfjarðar fáskrúðsfjörður Stefán Geir, Jóhanna, Albert, Sigurbjörg, Andrea Elva Bára  Jóhanna Röngvaldsdóttir
Sírópslengjur

Sírópslengjur

Þegar við bekkjarsystkinin úr grunnskóla komum saman á dögunum þá kom Jóhanna með sírópslengur sem runnu út (ofan í okkur) eins og heitar lummur. Mjög góðar með kaffibolla. Það er einhver óútskýrð sæla sem fylgir gömlum kaffimeðlætisuppskriftum, kannski er það sírópið í grænu krukkunum. Þegar ég var lítill átti ég það til að borða aðeins of mikið af því. Við eigum til að vanmeta gömlu góðu uppskriftirnar eða gleyma þeim. Stundum hef ég minnkað sykurmagn verulega í gömlum uppskriftum.

VÍNARBRAUÐÍSLENSKTFÁSKRÚÐSFJÖRÐUR

Grunnskóli fáskrúðsfjarðar fáskrúðsfjörður Stefán Geir, Jóhanna rögnvaldsdóttir jóhanna rögga, Albert, Sigurbjörg hilmarsdóttir, Andrea sigurðardóttir Elva Bára bjarnadóttir
Stefán Geir, Jóhanna, Albert, Sigurbjörg, Andrea og Elva Bára

Sírópslengjur

400 g hveiti
200 g sykur
200 g smjörlíki
1 egg
1 tsk. natron (matarsódi)
1 tsk. kanill
1 msk. síróp
1/2 tsk salt

Blandið öllu saman og hnoðið í hrærivél, rúllið í lengjur, setjið á plötu og þrýstið ofan á. Bakað við 200°C. í ca 10 mín

Skorið lengjurnar í bita á meðan þær eru heitar.

Fáskrúðsfjörður árgangur 1966

VÍNARBRAUÐÍSLENSKTFÁSKRÚÐSFJÖRÐUR

— SÍRÓPSLENGJUR SEM RENNA ÚT EINS OG HEITAR LUMMUR —

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vegan – fyrir og eftir

Vegan Before After

Vegan - fyrir og eftir. Nú stendur yfir veganúar, fyrirmyndin er Veganuary.com.  Markmið veganúar er að vekja fólk til umhugsunar um áhrif neyslu dýraafurða og kynna kosti vegan fæðis fyrir heilsu, umhverfi og dýravernd. Skorað er á þátttakendur að neyta eingöngu vegan grænmetisfæðis í janúarmánuði og upplifa af eigin raun hversu gefandi og auðvelt það getur verið.