Klausturkaffi á Skriðuklaustri er eitt þjóðlegasta veitingahús á Íslandi
Elísabet Þorsteinsdóttir er vertinn á hinu huggulega Klausturkaffið sem var opnað árið 2000 um leið og menningar- og færðasetur Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri. Stefnan er að halda íslenskri matarmenningu og gestrisni á lofti og það tekst vel. Allt gert á staðnum stemningin skilar sér fullkomlega.
Alla daga er hlaðborð í hádeginu og kaffihlaðborð síðdegis. Auk hlaðborðsins er fjölbreyttur matseðill. Þar má meðal annars finna hreindýraböku, lambalundir og rauðrófubuff.
— SKRIÐUKLAUSTUR — KAFFI- OG VEITINGAHÚS — EGILSSTAÐIR —
.
Heimalagaður bláberjaís
4 eggjarauður, þeyttar í froðu.
1 msk karamella
80 g mulinn marengs
1-2 msk bláberjasulta eða önnur berjasulta – hrært saman við eggjafroðuna.
1/2 l rjómi, þeyttur
Blandið öllu saman og frystið í a.m.k. 4 klst.
Gott er að hella birkisýrópi, eða karamellusósu yfir ísinn þegar hann er borinn fram!
Auk hlaðborðsins er matseðill. Meðal drykkja á á honum eru: krækiberjadrykkur, hrútaberjamjöður, bláberjasnafs. Matseðilinn er fullur af ýmsum áhugaverðum upplýsingum, meðal annars má þar lesa fróðleik um hvaðan fiskurinn kemur, um hrútaber, hvönn, lerkisveppi og um hreindýr en einn af forvígismönnum innflutnings hreindýra á Íslandi var sýslumaðurinn Hans Wiium sem bjó a Skriðuklaustri. Því er vel við hæfi að bjóða hreindýrafurðir á Klausturkaffi.
— SKRIÐUKLAUSTUR — KAFFI- OG VEITINGAHÚS — EGILSSTAÐIR —
— KLAUSTURKAFFI Á SKRIÐUKLAUSTRI —
.