Vinkvennakaffið árlega – gleðisprengja með góðum konum
Síðustu tuttugu ár hefur verið hér á bæ svokallað Vinkvennakaffi. Þangað er boðið nokkrum mektarkonum og saman áttum við einstaklega skemmtilega stund. Vegna reiðhjólaslyssins og viðbeinsbrotsins varð sú breyting á að kaffiboðið breyttist í Pálínuboð, dömurnar komu allar með kaffimeðlætið og úr varð heljarinnar veisla með miklum hlátrarsköllum.
— PÁLÍNUBOÐ — VINKVENNAKAFFI — KAFFIBOÐ —
.
Hindberjabakan góða
Uppskrift af botni og loki:
1 bolli ósaltað smjör (kalt, skorið í teninga)
2 ½ bolli hveiti
1 tsk salt
6-8 msk ískalt vatn
Hitið ofninn í 220°C Blandið saman smjöri, hveiti og salti með höndunum, mikilvægt er að mylja smjörið vel niður svo að hvergi séu “smjörklessur” í deiginu. Bleytið svo upp í deiginu með vatninu, gætið þess að það sé ískalt. Ég nota alltaf nær allt vatnið. Fletjið út helminginn af deiginu á hveitistráðum fleti (gætið þess þó að nota ekki of mikið hveiti). Ég nota yfirleitt bökunarpappír á milli deigs og kökukeflis svo deigið festist ekki við kökukeflið. Setjið deigið á bökuformið ykkar, deigið á að ná upp kanta formsins og út á barma þess. Kælið bæði bökubotninn og hinn helming deigsins á meðan fyllingin er gerð.
Fylling:
5 bollar frosin hindber (látið þau svo þiðna, gott að taka út daginn áður og geyma í ísskáp)
2/3 bolli strásykur
1 msk sítrónusafi
4 msk maízenamjöl
Hrærið öllu saman með sleif (engan hamagang, bara rólega) og hellið á bökubotninn. Fletjið út bökulokið og skerið út fallegt mynstur (eða ljótt) svo gufan úr bökufyllingunni komist út við bakstur. Setjið bökulokið ofan á bökuna, lokið á að ná yfir barma formsins líkt og bökubotninn. Þrýstið saman bökubotninum og bökulokinu á börmum formsins með gaffli. Hyljið barmana með álpappir til þess að þeir brenni ekki.
Bakið bökuna í miðjum ofni við 220°c í 10 mínútur. Lækkið svo hitann í 175°c og bakið í 30-40 mínútur til viðbótar. Bakan er bæði góð heit og köld, t.d. með rjóma eða ís.
„Í sumum amerískum uppskriftum af hindberjabökum er kanill í fyllingunni auk sítrónusafa – ég skora á þann sem bakar eftir þessari uppskrift að prufa að bæta við eins og einni teskeið eða svo” segir Bergdís frænka mín kom með Hindberjabökuna góðu.
Forsetatertan 😊
Svampbotn
3 egg
1 b sykur
1 b hveiti
Þeytið egg og sykur vel, bætið hveiti út í og þeytið í stutta stund.
Bakið við 180°C í um 20 mín.
Kælið botninn, kljúfið í tvennt og setjið fyllingu á milli.
Fylling 1
Frómas
3 egg
60 g sykur
6 blöð matarlím
1 peli rjómi – þeyttur
1 dós niðursoðin jarðaber
Slatti af ferskum jarðaberjum
Egg og sykur þeytt vel saman.
Leggið matarlímsblöð í bleyti í kalt vatn og bræðið svo í jarðaberjasafa (ca. 1 dl.) yfir vatnsbaði og kælið. Rjómi er þeyttur sér.
Setjið niðursoðin jarðaber saman við eggjablönduna, svo matarlímið. Hrærið rjómanum varlega saman við og síðan niðurskornum ferskum jarðaberjum.
Fylling 2
Jarðaberjahlaup
Má nota hlaup úr pakka eða þá hleypa jarðaberjasafa með matarlími.
Samsetning tertunnar:
Svampbotn, frómas, jarðaberjahlaup, frómas og svo efst kemur hinn svampbotninn.
Skreytið að vild, á þessari tertu var mynd úr sykurmassa og KitKat sett utan um kökuna.
Ostakúla
1 ds Philadelphia ostur með hvítlauk og kryddi
350 g rjómaostur (við stofuhita)
1 hvítlauksrif
1/4 b sýrður rjómi
1 b rifinn mozzarella ostur
1/2 b rifinn Parmesan ostur
2 tómatar, fræhreinsaðir og saxaðir smátt
1/2 b sólþurrkaðir tómatar
1/2 b saxað basil
1 msk balsamik edik
salt
pipar
Leggið sólþurrkaða tómata á eldhúsþurrkublað og þerrið mestu olíuna af og saxið. Setjið 1 msk af Philadelphia osti og hvítlaukrif í matvinnsluvél og maukið. Setjið Philadelphia ost, rjómaost í skál og bætið öllum hráefnunum saman við. Útbúið kúlu, kælið
Yfir:
3/4 b Panko raspur
1 msk smjör
3 msk saxaðir sólþurrkaðir tómatar
3 msk basil, saxað
Bræðið smjör á pönnu, bætið við raspi og brúnið þangað til hann er ljósbrúnn. Kælið og bætið við tómötum og basil
Veltið ostakúlunni upp úr og kælið
Eplakaka
100 g smjör
2 dl sykur – hrært saman.
3 egg bætt rólega saman við
vanilludropar og 2 tsk sítrónussafi
1/2 tsk salt
3 dl hveiti
1 tsk lyfirduft
þessu er hrært saman við og sett í kringlótt form
2 stk epli raðað ofan á og kanilsykur stráð yfir og smá smjörklípa.
Bakið við 180°C í 20 min eða þar til kakan er tilbúin. Berið fram með rjóma
Berta Dröfn kom með sumarsalat sem stóð fullkomlega undir nafni. Sumarlegt, bragðgott og litfagurt
Sumarsalat
250 gr rækja
1 mango
1 rauður chili
1/2 ananas
1/2 agúrka
1/2 appelsínugul paprika
1/2 rauðlaukur
Slatti af kóríander (eða eftir smekk)
Sósan:
1 dós 10% sýrður rjómi
1 lime; fyrst hýðið raspað af og svo hálf lime kreist út í
2 ml. sykur
Hollensk engifersmjörkaka
100 g smjör
100 g púðursykur
200 g hveiti
1 egg (geyma smá til að smyrja ofan á)
1 tsk salt
ein krukka engifer í sírópi, skera hann niður, blanda öllu saman og hnoða vel.
Sett í botn á smurðu jólakökuformi með hveiti í botni. Sett í form, draga rákir á yfirborð með gaffli og smyrja yfirborð með egginu. Baka í 25 mín. við 190 gráður. Slá eftir baksturinn úr formi og skera í fingursbreiðar lengjur. Ef vilji er til að hafa kökuna frekar mýkri má setja smá af sírópinu af engifernum út í deigið. Í dag var ég semsagt með tvöfalda uppskrift❤️❤️
Esther frænka mín kom með Döðluköku með karamellusósu, einstaklega góða tertu sem borðuð var upp til agna.
Döðlukaka með karamellusósu
5 msk sykur
120 g smjör, við stofuhita
2 egg
100 g hveiti
100 g ristaðar kasjúhnetur
210 g döðlur
1 tsk matarsódi
1/2 tsk kanill
1/2 salt
1/2 tsk vanillu extract, eða dropar
1 1/2 tsk lyftiduft
Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C og smyrjið hringlaga kökuform.
Setjið döðlurnar í pott og látið vatn fljóta yfir, þegar vatnið nær suðu takið pottinn af hitanum og látið hann standa í 3 – 4 mínútur.
Blandið matarsóda við döðlumaukið og blandið því vel saman. Leyfið blöndunni að standa í svolitla stund eða þar til blandan kólnar, hún má ekki far heit saman við smjörið (trúið mér – ég hef brennt mig á þeim mistökum nokkrum sinnum)
Þeytið smjör og sykur saman þar til blandan verður létt og ljós, bætið einu og einu eggi saman við og þeytið í mínútu á milli.
Setjið þurrefninsaman við ásamt vanillu. Þeytið í smá stund og bætið síðan döðlumaukinu saman við í þremur skömmtum ásamt ristuðum kasjúhnetum.
Hellið deiginu í smurt form og bakið við 180°C í 35 – 40 mínútur.
Heimsins besta karamellusósa
120 g smjör
1 1/2 dl rjómi
120 g púðursykur
Hitið öll hráefnin í potti þar til karamellan fer að sjóða, hrærið reglulega í pottinum eða þar til þið hafið náð ágætri þykkt á karamellunni. Uppskriftin er fengin frá Evu Laufeyju
—