Sjúkleg sítrónukaka er úr smiðju Jóhönnu V. Þórhallsdóttur sem bauð í kaffi.
🍋
— JÓHANNA ÞÓRHALLS — SÍTRÓNUBÖKUR — LEMON CURD —
🍋
Sjúkleg sítrónukaka
Botn:
2,5 dl hveiti
0,5 dl sykur
hálf tsk vanillusykur/dropar
150 g smjör
Blandið öllu saman í matvinnsluvél og þrýstið í botninn á vel smurðu formi
Bakið við 200°C í 12-15 mín þar til gyllt
Fyllingin gerð á meðan:
3 egg
2 dl sykur
hálfur dl hveiti
rifinn börkur af 1 sítrónu
6 msk af sítrónusafa (eða eftir smekk).
Þeytið egg og sykur blandið þvínæst hveitinu með.
Bætið sítrónuberki og safa út í og hrærið.
Hellið blöndunni yfir forbakaðan botninn og bakið í 10 mínútur í viðbót.
Svo bætti ég smá lemon curd yfir til að fá fallega gula litinn fyrir myndatökuna, en því má sleppa.
🍋
— JÓHANNA ÞÓRHALLS — SÍTRÓNUBÖKUR — LEMON CURD —
🍋