Nutella – Oreo ostakaka
Á Borgarfirði eystra hittum við Elísabetu D. Sveinsdóttir frá Skorradal í Borgarfirði hinum syðri – eða síðri eins og stundum er grínast með fyrir austan. Hún flutti austur fyrir sex árum og vinnur nú á Blábjörgum.
— BORGARFJÖRÐUR EYSTRI — OSTAKÖKUR — OREO —
.
Uppáhaldsmaturinn þinn, undarlegasti matur sem þú hefur bragðað og er eitthvað sem þú borðar alls ekki? „Uppáhalds maturinn minn er folaldasteik, ofnbakaðar kartöflur og smjörsteiktir sveppir, ég er oftast með kalda grillsósu og finnst það passa vel saman. Ég er samt mun meiri sætindakona en matarkona svo ég elska góðar kökur og er kókosbolluréttur eitthvað sem klikkar aldrei (rjómi, kókosbollur, marengs)
Ég hef ferðast nánast um allan heiminn og smakkað ótrúlegustu rétti, eitt það skrítnasta er líklegast engisprettur og maurar í Úganda. Þar er þetta selt sem “nammi í poka” fyrir krakkana. Þau elskuðu þetta. Steikt í olíu með salti og pipar.
Sem krakki gat ég engan vegin borðað lifur og hjörtu og hef ekki smakkað þau í yfir 20 ár og svo er ég ekkert fyrir villibráð. Rjúpur og hreindýr, sem allir virðast elska, er alls ekki hægt að heilla mig með.”
Nutella – Oreo ostakaka
8 stk hafrakex
4 stk oreokex
Mulið og bleytt með bræddu smjöri
Þjappað saman í botninn á formi/skál
300 g rjómaostur
1 dl flórsykur
1-2 tsk vanilludropar
hrært saman og svo bætt út í 2 msk af nutella – hrært.
Fallegt að hræra það ekki ofmikið því þá kemur misdökkt mynstur í rjómaostinn.
Sett ofaná botninn og kælt.
Fallegt að skreyta með oreokexi, berjum eða jafnvel bræddu súkkulaði.
.
— BORGARFJÖRÐUR EYSTRI — OSTAKÖKUR — OREO —
.