Sauðafell í Dölum
Á hinu sögufræga höfuðbóli Sauðafelli í Dölum reka hjónin Finnbogi og Berglind myndar sauðfjárbú og gistiheimili. Þarna er dásamlegt að dveljast um skemmri eða lengri tíma. „Nú ríkir kyrrð í djúpum dal“ kom upp í hugann þegar gengið var til náða, en út um gluggann mátti sjá allt frá Baulu í Borgarfirði og út á sólarlagið á Breiðafirði og lömbin undu vel hag sínum við fuglasönginn.
— SAUÐAFELL — FERÐAST UM ÍSLAND —
.
Sauðafell hefur verið í eigu fjölskyldunnar í rúma öld. Fyrir nokkrum árum gerðu Berglind og Finnbogi afar smekklega upp gamla íbúðarhúsið á bænum, sem var byggt 1897, og breyttu því í gistiheimili. Þarna er mikið um útsaum frá gamalli tíð og falleg gömul húsgögn og húsið er því fullt af karakter. Þetta er stórhýsi á þess tíma mælikvarða með sex svefnherbergjum með uppábúnum rúmum fyrir 13 manns. Eldhúsið er vel útbúið, stór stofa og 3 baðherbergi með sturtu. Hægt er að leigja stök herbergi eða allt húsið sem hentar vel fyrir starfsmannahópa, vinafundi eða fjölskylduhittinga.
Maður fær gæsahúð þegar hugsað er um söguna hér. Í kirkjunni var byssuslagur þegar Jón Arason var handtekinn haustið 1550. Sturla Sighvatsson bjó hér og Sauðafellsför í janúar 1229 er annar frægur atburður í sögunni.
Páli finnst ekki ólíklegt að kólnandi loftslag hafi komið Sturlungaöld af stað. Fólki fækkaði, tekjur minnkuðu og þá fóru þeir að reyna að leggja undir sig meira land. Og allt fór í bál og brand.
Kirkjugarðurinn á Sauðafelli. Í kirkjugarðinum var kaþólski biskupinn Jón Arason handtekinn og fluttur í Skálholt og hálshöggvinn haustið 1550
— SAUÐAFELL — FERÐAST UM ÍSLAND —
.
Eitt og annað áhugavert í nágrenninu: ÓLAFSDALUR — BÚÐARDALUR — ERPSSTAÐIR — VEIÐISTAÐURINN — DALAKOT — HANDVERKSHÓPURINN BOLLI — SUNDLAUGIN LAUGUM — GUÐRÚNARLAUG — VÍNLANDSSETUR — EIRÍKSSTAÐIR — DALAHESTAR — HÚSDÝRAGARÐURINN Á HÓLUM —
Við ferðaþríeykið viljum gjarnan heyra frá ferðaþjónustufólki