Steinsnar frá Keflavíkurflugvelli er Courtyard by Marriott hótelið. Nýtt, glæsilegt hótel sem er algjörlega kjörinn dvalarstaður og sérlega vel staðsettur. Leggið þetta á minnið gott fólk: Gestir hótelsins geta geymt bílinn við hótelið án endurgjalds á meðan skroppið er til útlanda.
— FERÐAST UM ÍSLAND — VEITINGASTAÐIR — KEFLAVÍK —
Við Stína Ben snæddum á veitingastað hótelsins sem kallast The Bridge. Það er svo gaman að láta koma sér á óvart á veitingastöðum. Okkur var boðið í „ferðalag” um Ítalíu með fjölbreyttum bragðgóðum, velútilátnum réttum. Kacper kokkur, sem lærði á Ítalíu, kom og útskýrði hvað væri í vændum; Antipasto, Risotto, Tagliatelle, rauðspretta, lambakótelettur og sardinískt sætabrauð í eftirrétt. Það má sko vel mæla með þessu ferðalagi.
Fínasta þjónusta, bæði þægileg og látlaus. Þjónninn okkar kom með frábæra hugmynd sem mætti taka upp víðar. Hægt var að fara í vínpörun, það er fá sérvalið vín með hverjum rétti. Okkur fannst að allt of mikið af því góða en hugmyndin fína var að koma með eins og gott botnfylli af víni með hverjum rétti.
Ferðabloggast um Ísland. Við Bergþór og Páll gerðumst ferðabloggarar síðasta sumar og fórum víða og vorum himinlifandi eins og sjá má HÉR. Nú erum við tilbúnir að halda af stað aftur og viljum gjarnan heyra frá ferðaþjónustufólki.
.
— HÓTEL COURTYARD BY MARRIOTT —
.