Silvíukökur – verðlaunasmákökur
Þóra Þorgeirsdóttir sigraði glæsilega í smákökusamkeppni Kornax. í ár. Dómnefndin var einróma í vali sínu. Gæða smákökur sem bragðast vel góðum kaffibolla.
— ANNAÐ SÆTIÐ — ÞRIÐJA SÆTIÐ — KORNFLEX — SMÁKÖKUSAMKEPPNI — SMÁKÖKUR — KORNAX — JÓLIN —
🎄
Silvíukökur
Uppskrift:
350 g mjúkt smjör
100 g sykur
200 g púðursykur
2 egg
200 g Kornax hveiti
180 g kornfkex
180 g kókosmjöl
1 ½ tsk vanilludropar
½ tsk salt
1 tsk matarsódi
½ tsk kanill
120 g karamellukurl frá Nóa Siríus
100 g smátt skorin trönuber
Öll hráefni sett saman í hrærivél og unnið vel saman. Rúllið deiginu út í lengjur, skerið í litlar kökur. Setjið á pappírsklædda ofnplötu með gott bil á milli. Bakað í 10-12 mínútur við 180°c (ath. ofnar geta verið mismundandi)
Krem uppskskrift:
250 g mjúkt smjör
250 g flórsykur
2 tsk vanilludropar
4 msk rjómi
Krem aðferð:
Allt hrært saman. Setjið kremið á milli og myndið samloku.
🎄
— ANNAÐ SÆTIÐ — ÞRIÐJA SÆTIÐ — SMÁKÖKUSAMKEPPNI — SMÁKÖKUR — KORNAX — JÓLIN —
— SILVÍUKÖKUR —
🎄