Kosningakaffisamkundur eru dásamlegar
Það er svo notalegt að fara á milli og smakka á kaffiveitingum hjá frambjóðendum á kosningadag, finna hlýhuginn og hátíðlega stemningu. Þetta eru hinar dásamlegustu samkundur, létt yfir öllum eftir kosningaham viknanna á undan og áður en tölur eru birtar. Prúðbúið fólk fer á milli og gerir kosningakaffinu góð skil á hverjum stað. Ísfirðingar slógu ekki slöku við frekar en fyrridaginn og á öllum þremur stöðunum voru borðin hlaðin veitingum – einstaklega góðum veitingum. Þjóðleg og falleg hefð.
🇮🇸
— SAMKUNDUR — KOSNINGAR — ÍSAFJÖRÐUR — KOSNINGAKAFFI — TERTUR — KAFFIBOÐ — BRAUÐRÉTTIR — ÞJÓÐLEGT — ÍSLENSKT —
🇮🇸
🇮🇸
— SAMKUNDUR — KOSNINGAR — ÍSAFJÖRÐUR — KOSNINGAKAFFI — TERTUR — KAFFIBOÐ — BRAUÐRÉTTIR — ÞJÓÐLEGT — ÍSLENSKT — HORNAFJÖRÐUR —
🇮🇸