Óvenju íhaldssamir eiginmenn

Gömul húsráð, breyttir tímar og íhaldssamir eiginmenn

0
Auglýsing
Gamlar bækur með húsráðum eru óþrjótandi uppspretta fróðleiks og skemmtunar. Þvottur og ræsting frá 1948 er engin undantekning – þar leynast bæði nytsamleg húsráð og skemmtilegar svipmyndir af heimilishaldi og tíðaranda liðinna ára.

Þvottur og ræsting

Það er bæði skemmtilegt og fróðlegt að skoða gömul húsráð. Þar má finna ráð sem hafa elst undravel, önnur sem vekja bros og sum sem minna okkur á hversu mikið heimilishald, tækni og viðhorf hafa breyst. Gömul ráð segja nefnilega ekki aðeins frá þrifum, matargerð eða daglegum verkum, heldur líka frá tíðarandanum.

–  Þvottur og ræsting  –  Gömul ráð og háttvísi

Auglýsing

Í bókinni Þvottur og ræsting má lesa þessa skemmtilegu athugasemd:

„Húsmæður hafa fyrir löngu skilið, að vélar geta létt störf þeirra, alveg eins og vélarnar hafa fyrir löngu létt jarðyrkju og iðnað, en eiginmennirnir eru oft óvenjulega íhaldssamir, þegar um er að ræða hjálpartæki við innistörf.“

— Þvottur og ræsting, 1948

 

Fleira áhugavert:

–  Royalistar á Ísafirði – Ladies who Lunch  –  Múffur með eplum og haframjöli   – Draumaterta dásamlega góð  —  Hvítlaukskartöflur Helgu  – Heill kjúklingur í ofni  – Vínartertan góða og fræga  – Sælgætismolar  —  Stór eða lítil eyru?  –

Fyrri færslaRabarbarasultusinnep
Næsta færslaMangó- og kjúklingasalat