
Jarðarberja- og rabarbarasulta
Jarðarber og rabarbari eru einstaklega gott par í sultu. Jarðarberin gefa sætan og mjúkan keim en rabarbarinn ferskleika og örlitla sýru. Útkoman er sumarleg, falleg og ljúffeng sulta sem passar vel með nýbökuðu brauði, vöfflum, pönnukökum, ostum eða út á gríska jógúrt.
Það er líka bráðsniðugt að setja sultuna í fallega krukku og taka með í heimsókn – heimagerður glaðningur gleður alltaf.
— SULTUR — JARÐARBER — RABARBARI —
.

Jarðarberja- og rabarbarasulta
400 g rabarbari
500 g jarðarber
3 dl sykur
1 msk sítrónusafi
1/2 tsk vanilla
1/3 tsk salt
Skerið rabarbarann smátt og jarðarberin í tvennt.
Setjið allt í pott og látið sjóða við vægan hita í 45–50 mínútur, eða þar til sultan hefur þykknað.
Hrærið öðru hvoru. Hellið sultunni heitri á hreinar krukkur og lokið strax.

Fleira áhugavert:
— Vinsælustu brauðréttirnir á Albert eldar — Prýðisgóður plokkfiskur — Rabarbarapæ Alberts — Vöfflur, hin klassíska uppskrift — Draumaterta, dásamlega góð — Eggjasalat — Hjónabandssæla —
