Óla rúgbrauð – mjúkt og bragðgott heimabakað rúgbrauð
Það er ótrúlega mikill munur á rúgbrauði og rúgbrauði. Sum eru svo sæt að þau minna næstum meira á köku en brauð, en þetta heimabakaða rúgbrauð er einstaklega gott, mjúkt og bragðmikið.
Í stórafmæli Láru var boðið upp á fjölbreyttar og ljúffengar veitingar. Þar vakti sérstaka athygli rúgbrauðið sem Óli hennar bakaði. Það rann ljúflega niður og var sérlega gott með smjöri og marineraðri síld.
– RÚGBRAUÐSSÚPA – RÚGBRAUÐ – RÚGMJÖL – Lára Björnsdóttir –
.
Óla rúgbrauð
1 l súrmjólk
480 g rúgmjöl
150 g heilhveiti
130 g hveiti
1 msk. natron, um 34 g
115 g púðursykur eða hrásykur
300 g síróp
2 góðar tsk. salt, um 22–23 g
Hitið ofninn í 100°C.
Blandið öllum hráefnunum vel saman þar til deigið er kekkjalaust. Smyrjið stórt brauðform eða annað eldfast mót vandlega og setjið deigið í formið.
Lokið forminu vel með loki eða þéttum álpappír. Það er mikilvægt að brauðið bakist í lokuðu íláti svo það haldi rakanum.
Bakið rúgbrauðið við 100°C í 4 klukkustundir. Slökkvið þá á ofninum en látið brauðið standa áfram í lokuðum ofninum í 6–8 klukkustundir, eða yfir nótt.
Takið brauðið úr forminu þegar það hefur kólnað. Skerið það í þunnar sneiðar og berið fram með góðu smjöri, osti, reyktum laxi eða marineraðri síld.


Fleira áhugavert:
— Súkkulaðitertur — Heslihnetur — Chia — Morgunmatur — Ostakökur — Kartöflur — Salöt — Kryddbrauð — Skyrtertur –


Eg ætla prófa baka þetta rúgbrauð í kvöld, vonandi tekst það vel hjá mér. Takk fyrir uppskriftina.
Ég er búinn prufa þetta og fór eftir uppskriftinni og útkoman var alveg hrátt brauð og mjög ljóst a litinn , er möguleiki á því að það vannti eitthvað í þessa uppskrift eða í lýsingu ?
takk fyrir
Frá Óla: Það er 23 gr salt og 34 gr natron
Það er eina sem er vitlaust en svo er spurning hvort þetta var i ofni yfir nóttina eftir að buið er að slökkva a ofninum ca 6-8 timar það þarf að breyða yfir það álpappir eða bakast i lokuðu ílati
Comments are closed.