Grillað lambalæri Kjartans

Safaríkt lambalæri kryddað með oregano, kúmmíni og hvítlauk, grillað við óbeinan hita þar til það verður einstaklega meyrt.

0
Grillað lambalæri Kjartans
Grillað lambalæri Kjartans
Auglýsing
Grillað lambalæri Kjartans á kolagrilli
Grillað lambalæri Kjartans

Grillað lambalæri Kjartans – safaríkt og meyrt á grillinu

Hæggrillað lambalæri er einn af þessum réttum sem slær alltaf í gegn. Ef lambalærið fær góðan tíma á grillinu verður það einstaklega meyrt, safaríkt og bragðmikið. Gott er að taka kjötið úr kæli nokkrum klukkustundum áður en það fer á grillið svo það nái stofuhita og eldist jafnar.

Kjartan Örn á það til að fara hamförum í eldhúsinu og á grillinu. Hann hefur oft komið við sögu á síðunni eins og sjá má HÉR. Þetta lambalæri kryddaði Kjartan með oregano, kúmmíni, kóríander, hvítlauk og fleiri góðum kryddum sem gefa kjötinu einstakt bragð.

Auglýsing

Lambalærið er grillað við óbeinan hita í um eina og hálfa klukkustund og síðan látið hvíla áður en það er skorið. Útkoman er meyrt og safaríkt kjöt sem passar einstaklega vel með steiktum kartöflum, pestói, salati eða öðru góðu meðlæti.

 

KJARTAN ÖRNLAMBAKJÖTGRILLLAMBALÆRI

.

 Grillað lambalæri Kjartans

1 lambalæri (um 2–2,5 kg)
1 msk oregano
3 hvítlauksrif, pressuð
2 tsk möluð kóríanderfræ
1½ msk kúmmín
1½ msk gróft sjávarsalt
½ msk nýmalaður svartur pipar
½ msk allrahanda
¼ msk kardimommur
¼ msk túrmerik

Blandið öllum kryddunum saman í skál.
Nuddið kryddblöndunni vel utan á lambalærið.
Látið kjötið standa við stofuhita í 1–2 klukkustundir.
Grillið við óbeinan hita í um 1½ klukkustund.
Pakkið lærinu í álpappír og látið hvíla í 15–20 mínútur áður en það er skorið.
Berið fram með góðu meðlæti að eigin vali.

Grillað lambalæri Kjartans

Grillað lambalæri Kjartans
Kjartan Örn grillar lambalærið

Fleira áhugavert:

—  Humarveisla Önnu Rósu  — Forsetaísinn — Skúffukakan besta  —  Grafinn lax og graflaxsósa  — Rabarbarasulta  — Sítrónu linguine Nigellu  — Múffur með eplum og haframjöli  — Döðlukonfekt, gott, gottÍtölsk sítrónukaka

Fyrri færslaSælkeraskúffa – sælkeraskúffa
Næsta færslaGrilluð glútenlaus pitsa