
Snickerskaka
Þessi Snickerskaka barst fyrst inn í líf mitt í föstudagskaffinu í vinnunni. Freysteinn kom með hana, uppskrift sem á að eiga uppruna sinn hjá Heilsuhúsinu – og hún vakti strax verðskuldaða athygli. Einföld, bragðmikil og eiginlega alveg hættulega góð.
.
— HRÁTERTUR — DÖÐLUR — MÖNDLUR — KÓKOSMJÖL — HRÁFÆÐI — VEGAN — TERTUR — SNICKERS —
.

Snickerskaka
Botn:
200 g döðlur lagðar í bleyti í 10 mín
100 g möndlur
100 g kókosmjöl
1/2 tsk. vanilluduft eða dropar
Möndlurnar maukaðar fyrst í matvinnsluvél og hitt sett út í á eftir. Þessu er þrýst niður í kökuform sem er klætt með bökunarpappír. Sett í frysti í ca 10 – 15 mín. Botninn tekinn út og lífrænu grófu hnetusmjöri smurt yfir, magn fer eftir smekk. Sett aftur í frysti á meðan súkkulaðið er búið til.
Súkkulaðibráðin:
1 dl. kókosolía (brædd í vatnsbaði)
1 dl. hreint hrákakó (lífrænt)
1/2 dl. agave sýróp
Þessu hellt yfir og kakan geymd í frystinum.
Gott að skera niður í konfektbita og geyma hana þannig í frysti.
.
— HRÁTERTUR — DÖÐLUR — MÖNDLUR — KÓKOSMJÖL — HRÁFÆÐI — VEGAN — TERTUR — SNICKERS —
.
