Grilluð samloka. Bragðgóð og holl samloka sem gott er að grípa til þegar hungrið segir til sín. Auðvitað má nota grænt pestó á báðar sneiðarnar eða þá rautt pestó á báðar.
.
Grilluð samloka
2 gróftar brauðsneiðar
2 tsk grænt pestó
1 lítið avókadó
spínat
2 sneiðar mozzarella
2 tsk rautt pestó
Smyrjið brauðsneið með grænu pestói, setjið ofan á avokadó í sneiðum og þar ofan á spítnat, því næst mozzarella. Smyrjið hina sneiðina með rauðu pestói og setjið yfir. Grillið á pönnu í nokkrar mínútur á hvorri hlið.
.