![Apótekshádegi og borðsiðanámskeið Borðsiðanámskeið Marsibil Apótekið Apótekshádegi og borðsiðanámskeið námskeið borðsiðir kurteisi](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2017/11/IMG_2941.jpg?resize=696%2C522&ssl=1)
Apótekshádegi og borðsiðanámskeið
Apótekshádegi og borðsiðanámskeið. Marsibil söng eftirminnilega Einu sinni á ágústkvöldi með afa sínum í sextugsafmæli hans í Eldborg um daginn. Að launum fékk hún m.a. út af borða með öfum sínum og námskeið í borðsiðum á Apótekinu. Allt gekk þetta vel, enda er hún svo sem ágætlega að sér í borðsiðum, en alltaf er hægt að rifja upp og bæta sig. Við fórum yfir hvernig er skálað, hvað við gerum við servíettuna, hvernig haldið er á hnífapörum og margt annað. Drögum ekki að kenna börnum góða borðsiði og kurteisi. Þau elska svona reglur.
— EINU SINNI Á ÁGÚSTKVÖLDI — BORÐSIÐIR — BORÐSIÐANÁMSKEIÐ — APÓTEKIÐ —
.
![Jólalegt kanelbrauð Jólalegt kanelbrauð](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2017/11/IMG_2939.jpg?resize=696%2C522&ssl=1)
Jólalegt kanelbrauð. Á meðan við biðum eftir matnum fengum við jólalegt brauð. Í því var var hvítt súkkulaði, trönuber og á brauðinu var kanilhúð. Með því var borið fram trufflusmjör – algjörlega truflað og minnti okkur á að það styttist til jóla.
![](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2017/11/IMG_2942-1.jpg?resize=696%2C522&ssl=1)
![Eftirréttirnir Eftirréttirnir](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2017/11/IMG_2995.jpg?resize=696%2C522&ssl=1)
![Yuzu og súkkulaði Yuzu og súkkulaði (mjólkursúkkulaðimús, karamelluyuzukrem og salthnetubaka. Það fór unaðsleg sæluvíma um líkamann við fyrsta bita (og reyndar við hvern bita...)](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2017/11/IMG_2957.jpg?resize=696%2C522&ssl=1)
![Jólakúla á kryddkexi Jólakúla á kryddkexi, karamelluhvítsúkkulaðimús með epla- og fáfnisgrasfyllingu.](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2017/11/IMG_2952.jpg?resize=696%2C522&ssl=1)
Cherry Delight. Hitti mann í vikunni sem fer mikið út að borða, hann sagði mér að besti eftirrétturinn á öllu höfuðborgarsvæðinu væri Cherry Delight (kirsuberjamús, kirsuberjafylling og hvítsúkkulaði á kexbotni). Þetta er jafn gott og það er fallegt. Það má vel mæla með því að þrífa aðeins minna fyrir jólin og fara á Apótekið til að fá sér þessa dásemd – þið sjáið ekki eftir því.
Get alveg viðurkennt að ég á til að ganga frekar hægt um veitingasali svo ég sjá hvað fólk er að borða. Gat ekki betur séð en flestir sem þarna voru væru með þjóðlegt íslenskt lambalæri í hádeginu á sunnudegi.
![Bergþór og Marsibil Bergþór og Marsibil](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2017/11/IMG_2948.jpg?resize=696%2C522&ssl=1)
— EINU SINNI Á ÁGÚSTKVÖLDI — BORÐSIÐIR — BORÐSIÐANÁMSKEIÐ — APÓTEKIÐ —
.