Jógúrt-muffins

Anna Kr. Ásmundsdóttir í Stóra-Mástunga. Jógúrtmuffins jógúrt muffins súkkulaði múffur möffins gnúpverjahreppur kvenfélag gnúpverjahrepps
Jógúrt-muffins

Jógúrt-muffins

Anna kom með jógúrt múffur á kvenfélagsfund í Gnúpverjahreppi, hún segir þetta vera þessar dæmigerðu með kaffijógúrt/hnetuogkaramellu, fullar af sykri sem auðvitað megi minnka um helming. „Oftar en ekki “drussa” ég karamellukurli yfir” fyrir bakstur eða um leið og og þær koma úr ofninum.” segir Anna Kr. Ásmundsdóttir í Stóru-Mástungu.

MUFFINSKVENFÉLÖGJÓGÚRT

Jógúrt-muffins

4 dl. sykur
220 g smjörlíki
3 meðalstór egg/4 lítil

Hrært saman í hrærivél, þar til létt og ljóst.
Blanda saman í annarri skál á meðan:
5 dl. hveiti
1/2 tsk. matarsódi
1/2 tsk. salt
vanilludropar
100 g rifið dökkt, súkkulaði að eigin vali

Sett út í hrærivélaskálina og hrært örstutt.

1 ds. kaffijógúrt/hnetu-og karamellujógúrt.
Blandað saman við og hrært í smá smástund.

Sett í múffuform með matskeið. Miða við að deigið fylli formið rétt, ríflega að hálfu.
Stilla ofninn á 180/200, ekki blástur. Fer eftir stærð formanna og ofnum, hversu lengi þær eru bakaðar en miða við að hætti að heyrast í þeim, þá eru þær bakaðar😁.

Kvenfélag Gnúpverjahrepps Jógúrt muffins
Kvenfélagskonur í Gnúpverjahreppi

.

MUFFINSKVENFÉLÖGJÓGÚRT

— JÓGÚRTMUFFINS —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.