Stórglæsileg kaffiveisla hjá kvenfélagskonum á norðanverðum Vestfjörðum

Guðrún Oddný Schmidt hnífsdalur Kvenfélögin Ársól á Suðureyri önundarfjörður, Hvöt í Hnífsdal, Brynja á Flateyri, Von á Þingeyri og Brautin í Bolungarvík. Frá vinstri: Þorgerður frá Von, Oddný frá Ársól, Esther frá Hvöt, Sigrún frá Brautinni og Ágústa frá Brynju. SUÐUREYRI vestfirðir kvenfélag kvenfélagskonur á vestfjörðum kaffihlaðborð PAVLOVA

Stórglæsileg kaffiveisla hjá kvenfélagskonum á norðanverðum Vestfjörðum

Ég þreytist seint á að dásama starf kvenfélaga um landið. Samfélagsbætandi félagsksapur og um leið uppbyggjandi á margvíslegan hátt. Við Bergþór hittum kvenfélagskonur á sameiginlegum fundi kvenfélagskvenna á norðanverðum Vestfjörðum. Þær komu með eitt og annað gómsætt á kaffihlaðborð á fundinn sem haldinn var í félagsheimilinu á Suðureyri. Í stuttu máli: ég bara elska kvenfélagsfundi og kaffimeðlætið 🙂

SUÐUREYRIKVENFÉLÖGTERTUR

.

Formenn eða fulltrúar félaganna með alberteldar-svuntur. Kvenfélögin Ársól á Suðureyri, Hvöt í Hnífsdal, Brynja á Flateyri, Von á Þingeyri og Brautin í Bolungarvík.
Formenn eða fulltrúar félaganna með alberteldar-svuntur. Að kaffinu stóðu Kvenfélögin Ársól á Suðureyri, Hvöt í Hnífsdal, Brynja á Flateyri, Von á Þingeyri og Brautin í Bolungarvík. Frá vinstri: Þorgerður frá Von, Oddný frá Ársól, Esther frá Hvöt, Sigrún frá Brautinni og Ágústa frá Brynju.
Jarðaberjaskyrterta með kókosbollum lu kex jarðarberjaskyr skyr terta kaka rjómi
Jarðaberjaskyrterta með kókosbollum

Jarðaberjaskyrterta með kókosbollum

Botn
1 ½ pakki af Lu Bastogne kexi
100 gr smör brætt

Myljið kexið og hellið smjörinu út í, setjið í form og svo í ísskáp.

1 stór dolla af jarðarberjaskyri
½ líter rjómi
3 kókosbollur

Þeytið rjóman og blandið skyrinu saman við og kremjið kókosbollurnar í skyrblöndunni með sleikju.
Setjið ofan á botninn og geymið í ísskáp í allavega 1 klukkutíma.
Þegar kakan er skreytt eru sett jarðarber, bláber, kókosbolla og bræddu súkkulaði hellt ofaná.

Daimkaka Daim kaka terta rjómi salthnetur kaffikrem
Daimkaka

Daimkaka

Hráefni:
3 eggjahvítur
2 dl sykur
1 dl saxaðar salthnetur
Þeytið eggjahvítur og sykur vel saman, bætið hnetunum út í að lokum.  Bakið í tveim formum við 150°C í ca 40 mín.

Kaffikrem:
½ l. rjómi
3 eggjarauður
100 g sykur
3 bl matarlím
1 dl kaffi uppáhelt
4-5 lítil Daim brytjuð smátt
Aðferð:
Þeytið rjómann.
Þeytið sykur og eggjarauður saman.
Bræðið matarlím í heitu kaffinu.
Blandið öllu blandað varlega saman og setjið á milli botnanna og ofan á. Frystið
Takið út ca 1 klst fyrir notkun
Best að hafa smá frost í kökunni þegar hún er borðuð.

Heimsins besta rúlluterta (Stína) -rúllutertumarengs royal búðuingur möndlur stína rjómi marengs terta
Heimsins besta rúlluterta (Stína) -rúllutertumarengs

Heimsins besta rúlluterta (Stína) -rúllutertumarengs

6 eggjahvítur
3 dl sykur
1 pk Royal vanilubúðingur
100 g möndluflögur
Þeytið vel hvítur og sykur, bætið Royalbúðingi saman við. Setjið bökunarpappír á bökunarplötu,stráið möndlum yfir og bakið við 180° í 20 mín.
Hvolfið á bökunarpappír og látið kólna.

Fylling:
1/3 lítri rjómi, þeyttur
Fersk ber, ávextir, gott að hafa mintusúkkulaði (pipp) sem er skorið niður.
Fyllingin sett ofan á og rúllað upp eftir langhliðinnu, skilja eftir 7-8 cm án fyllingar, fyllingin ýtist áfram þegar rúllað er.
Veislukaka Helgu súkkulaði Mars rjómi kókosmjöl terta kaka daim
Veislukaka Helgu

Veislukaka Helgu

4 egg
140 g sykur
85 g hveiti
1 1/2 tsk lyftiduft
100-150 g saxað súkkulaði
100-150 g kókosmjöl
Vanilla
Þeytið egg og sykur vel saman. Sigtið hveiti saman við og þar á eftir súkkulaði, kókos og vanillu. Bakið í tveimur formum í 15 mín við 180°C

Á milli: Þeyttur rjómi með söxuðu Daim

yfir: 1 Mars súkkulaði og rjómasletta brætt í potti og dreift yfir kökuna

Appelsínukaka með glassúr terta kaka appelsína
Appelsínukaka með glassúr

Appelsínukaka með glassúr

3 egg
200 g smjör
200 g sykur
200 g hveiti
1 tsk lyftiduft
Rifið hýði af 1 appelsínu ( má geyma smá í glassúrinn)
Safi úr rúmlega 1/2 appelsinu (restin í glassúrinn)
Smjör og sykur hræri saman engin útí eitt í einu , þurrefnin bökur ög safi útí.
Bakað í 24 cm smelluformi við 175 g í 30-40 mín.

Glassúr
150 g flórsykur
Ca 1-2 msk af appelsínumarmelaði
Safi úr appelsínu ca 2 msk

Kveðja Jovina

Þorgerðarbrauð Þorgerður Gunnlaugsdóttir, Þingeyri
Þorgerðarbrauð

Þorgerðarbrauð

3 b hveiti
3 b heilhveiti
7 tsk lyftiduft
1 tsk salt
1/2 dl sesamfræ
1 msk hunang
1 – 1 1/2 b hafrar
1 l súrmjólk eða ab-mjólk
ögn af köldu vatni
Hrærið öllum hráefnunum vandlega saman. Deigið þarf að vera mjög þykkt og sleifin sem hrært er í með á að geta staðið upprétt í deiginu. Setjið í þrjú 20 cm brauðform
Bakið við 150°C í 45 mín. Brauðin eiga að vera gullin að ofan.

Kveðja, Þorgerður Gunnlaugsdóttir, Þingeyri

 

Pavlóva Jóa Fel Sigrún jóna Sigurðardóttir ísafjörður kvenfélag guðmunda
Pavlóva Jóa Fel

Pavlóva Jóa Fel

Ég bakaði tertuna með rjómanum og ávöxtunum hún heitir Pavlóa og er frá Jóa Fel í hana fara 8 eggjahvítur 500 gr sykur 1 og hálf tsk edik hálf tsk vanilludropar og hálf tsk salt.

Rjómakrem: 2 dl rjómi, 3 msk flórsykur hálf tsk vanilludropa ferskir ávextir eftir smekk. Þetta er bara einn botn. Takk fyrir skemtunina þið voruð yndislegir.

Kveðja, Sigrún Jóna

 

SUÐUREYRIKVENFÉLÖGTERTUR

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.