„Úff hvað þetta er góður matur!!” heyrðist þegar við höfðum snætt hvern gómsæta réttinn á fætur öðrum á Gistihúsinu – lake hotel á Egilsstöðum. Í gegnum tíðina hef ég oft gist hjá heiðurshjónunum Gunnlaugi og Huldu í hinu rúmlega aldagamla virðulega húsi við Lagarfljótið og alltaf verið mjög ánægður, bæði með gistinguna og veitingarnar. Ekki minnkaði nú ánægja mín þegar við snæddum dýrindis veitingar veitingasalnum sem fengið hefur andlitslyftingu.
— GISTIHÚSIÐ — EGILSSTAÐIR — FERÐAST UM ÍSLAND —
Matseðilinn er vel hugsaður, fjölbreyttur án þess þó að þar væru of margir réttir. Áhersla er lögð á hráefni úr héraði og af staðnum en rekið er myndarbú við hlið Gistihússins.
— GISTIHÚSIÐ — EGILSSTAÐIR — FERÐAST UM ÍSLAND —