
Kókosterta Bjarneyjar
Þessi dásamlega glútenlausa kókosterta með súkkulaðikremi kemur frá Bjarneyju Ingibjörgu á Ísafirði. Hún kallar hana Kókoskökuna hennar Eyju ömmu – með smá tvisti.
Tertan er bæði falleg og einstaklega bragðgóð. Hún er gerð úr tveimur kókosbotnum; sá neðri er ljós en í þeim efri er kókospálmasykur sem gefur honum dekkri lit og sérstakt bragð. Á milli botnanna og ofan á tertuna kemur mjúkt súkkulaðikrem.
Kókostertan er glæsileg á kaffiborði, tilvalin þegar eitthvað sérstakt stendur til og góður kostur fyrir þá sem vilja glútenlaust kaffimeðlæti.
— BJARNEY INGIBJÖRG — ÍSAFJÖRÐUR — KÓKOSTERTUR — GLÚTENLAUST —
.

Kókoskakan hennar Eyju ömmu – með smá tvisti
Neðri botninn
4 eggjahvítur
140 g hrásykur
140 g kókosmjöl
1 tsk. vanilla
Efri botninn
4 eggjahvítur
75 g kókospálmasykur
140 g kókosmjöl
1 tsk. vanilla
Botnarnir eru gerðir í sitthvoru lagi en sama aðferð gildir um þá báða. Þeytið eggjahvítur og sykur þar til stífir toppar myndast og hægt er að hvolfa skálinni. Þegar kókospálmasykur er notaður þarf að sýna smá þolinmæði og leyfa blöndunni að þeytast vel; hún verður þó ekki alveg jafn þykk og þegar notaður er ljósari sykur. Bætið kókosmjöli og vanillu út í og hrærið varlega saman.
Setjið í tvö hringlaga form og bakið við 160°C í 30–40 mínútur. Látið botnana kólna áður en tertan er sett saman.
Súkkulaðikrem
4 eggjarauður
100 g flórsykur
100 g brætt súkkulaði
50 g smjör
Bræðið súkkulaði og smjör saman yfir vatnsbaði. Þeytið eggjarauður og flórsykur þar til blandan verður ljós og létt. Hellið súkkulaðiblöndunni út í í mjórri bunu og hrærið vel saman.
Kakan sett saman
Setjið ljósa botninn neðst, smyrjið kremi yfir, leggið dökka botninn ofan á og smyrjið aftur með kremi. Stráið kókosmjöli yfir til skrauts.
Berið fram með rjóma eða kókoskremi. Kókoskremið er gert með því að þeyta kókosrjóma vel og bæta 1 tsk. af vanillu út í.
Fleira áhugavert:
– Borðsiðanámskeið – Skyrtertur – Hreindýr – Kjúklingur – Sítrónur — Mangó Chutney – Sultur – Veislur hjá A&B —
