Kænugarðsterta – Kyiv cake – Київський торт

Fræg úkraínsk hátíðarterta með svampbotnum, heslihnetumarengs og súkkulaðikremi

0
Auglýsing
Kænugarðsterta (Kyiv Cake) – úkraínsk hátíðarterta með heslihnetumarengs

 

Kænugarðsterta – Київський торт (Kievski tort)

Kænugarðsterta – Kyiv cake – Київський торт

Auglýsing

Ein frægasta terta Úkraínu er Kænugarðstertu eða Kyiv Cake (Київський торт). Kakan er kennd við höfuðborgina Kyiv (Kænugarð) og hefur um áratugaskeið verið eitt þekktasta sælgæti Úkraínu. Hún er jafnan gerð úr léttum svampbotnum, stökkum hnetumarengs og súkkulaðikremi.

Það er fátt skemmtilegra en að kynnast sögu og menningu þjóða í gegnum matinn þeirra. Kænugarðstertan er ekki aðeins dásamlega góð heldur einnig hluti af matararfi Úkraínu og hefur lengi verið eitt af táknum borgarinnar. Þeir sem elska samspil heslihneta, súkkulaðis og marengs eiga eftir að falla fyrir þessari glæsilegu tertu.

🇺🇦

— ÚKRAÍNA  — TERTURMARENGSHESLIHNETUR

🇺🇦

Kænugarðsterta – Kiev cake – Київський торт

Kænugarðsterta – Kiev cake – Київський торт

Botn
5 egg
3/4 b sykur
1 b hveiti
1/3 tsk salt

Þeytið vel saman egg og sykur.
Bætið við hveiti og salti. Bakið í tertuformi við 170°C í um 25 mín
Látið kólna

Heslihnetumarengs

6 eggjahvítur
1 1/3 b sykur
1 b saxaðar heslihnetur.

Stífþeytið eggjahvítur og sykur, bætið heslihnetum saman við.
Bakið í jafnstóru formi og botninn á 150°C í um 3 klst.
Látið kólna.

2-3 dl apríkósusulta (jarðarberjasulta eða ferskjusulta)

Krem
6 eggjarauður
8 msk vatn
8 msk rjómi
1 msk vanillusykur
100 g dökkt súkkulaði
400 g smjör

Setjið eggjarauður, vatn, rjóma og vanillu í pott og hitið. Hrærið vel í. Takið af þegar hræran er farin að þykkna og komin að suðu.
Bætið súkkulaði saman við. Hrærið í. Látið kólna. Þeytið smjörið í hrærivél og bætið súkkulaðiblöndunni saman við.

Tertan sett saman.

Skerið tertubotninn í tvennt, opnið og dreifið sultunni á báða hlutana.
Látið annan botninn á tertudisk með sultuna upp.
Setjið þunnt lag af kremi yfir.
Leggið heslihnetumarengsinn yfir.
Setjið annað þunnt lag af kremi yfir.
Loks seinni botninn (sultuna niður)
Smyrjið restinni af kreminu yfir tertuna og á hliðarnar.

Fleira áhugavert:

–  Bláber  – Sultur  –  Skyrtertur  –  Kjúklingur  – Sítrónur —  Mangó Chutney  – Fiskréttir  – Kartöflur  — Veislur hjá A&B –

Fyrri færslaSúkkulaði-Fríða
Næsta færslaTúnfisk- og nýrnabaunasalat – Салат з тунцем та квасолею