
Portúgalskur saltfiskur – Gomes de Sá
Saltfiskur skipar sérstakan sess í portúgölskum matarhefðum. Þar kallast hann bacalhau og er stundum nefndur hinn trúi vinur, enda hefur hann fylgt þjóðinni um aldir, bæði á hátíðarborðum og í hversdagsmat. Portúgalar kunna að matreiða saltfisk á ótal vegu, og ein frægasta útgáfan er Bacalhau à Gomes de Sá — saltfiskréttur frá Porto.
Rétturinn er kenndur við José Luís Gomes de Sá Júnior, saltfisksala frá Porto, fæddan árið 1851 og látinn 1926. Hann starfaði við saltfiskverslun við Rua do Muro dos Bacalhoeiros í Ribeira-hverfinu í Porto og sagan segir að hann hafi síðar selt uppskriftina vini sínum João, matreiðslumanni á veitingastaðnum Lisbonense.
Leyndarmálið í klassískum Gomes de Sá er að rífa fiskinn fremur gróft niður og mýkja hann í volgri mjólk áður en hann fer með lauk, hvítlauk, kartöflum og ólífuolíu í ofninn. Útkoman er einfaldur, mildur og einstaklega notalegur réttur — portúgalskur heimilismatur eins og hann gerist bestur.
— SALTFISKUR – PORTÚGAL – FISKRÉTTIR – FISKUR Í OFNI —
Portúgalskur saltfiskur – Gomes de Sá
1 kg saltfiskur, útvatnaður
2 kg kartöflur
2 b mjólk
3 laukar
1/2 b ólívuolía
3-4 hvítlauksrif, marin
Pipar (salt ef þarf)
4 harðsoðin egg
20 svartar ólífur
steinselja
Sjóðið fiskinn í mjólkinni og látið kólna í soðinu. Sjóðið kartöflurnar, flysjið þær og skerið í bita.
Takið fiskinn í sundur með fingrunum (ekki of fínt) og blandið saman við kartöflurnar og setjið í eldfast form.
Skerið laukinn í tvennt og síðan í sneiðar, steikið hann í hluta af olíunni. Bætið hvítlauk saman við og restinni af olíunni og látið malla í nokkrar mínútur. Setjið yfir fiskinn.
Bakið í 40 mín við 150°C.
Skerið eggin í tvennt og setjið yfir ásamt ólífum og steinselju áður en borið er á borð.
Fleira áhugavert:
-— Sultaður rauðlaukur – lauksulta – Kókosterta — Brún lagkaka — Rúgmjölspartar — Ásta Snædís býður í kaffi — Hægeldaðir lambaskankar — Steiktur fiskur í brúnni sósu og ávaxtagrautur með rjóma — Merkingar á hlaðborðum –
