Kaldur rækjuréttur

Sígildur kaldur rækjuréttur með grænmeti, ananas og brauði

0
Auglýsing
Kaldur rækjuréttur

Kaldur rækjuréttur

Kaldir réttir af þessu tagi eru sígildir á veisluborðum, í saumaklúbbum, afmælum og á góðum kaffiborðum. Þessi rækjuréttur er mildur, ferskur og matarmikill með rækjum, grænmeti, ananas og brauði. Best er að útbúa hann daginn áður, því þá nær hann að jafna sig og verða enn betri.

–  KALDIR RÉTTIR   –  RÆKJUR    –  ANANAS   – BRAUÐTERTUR  –

Auglýsing

.

Kaldur rækjuréttur

500 g rækjur
1/2 gúrka
1/2 púrrulaukur
2 tómatar
1 rauð paprika
1 dós ananassneiðar
1 dós sýrður rjómi
3 msk majónes
1/2 samlokubrauð

Skerið grænmetið smátt. Hrærið saman sýrðum rjóma og majónesi og blandið grænmetinu saman við. Skerið brauðið í litla teninga og bætið út í.
Skerið ananasinn í bita og blandið honum varlega saman við ásamt rækjunum.
Setjið réttinn í fallegt form eða skál.

Sáldrið paprikubitum yfir og skreytið gjarnan með eggjabátum, vínberjum og litlum tómötum. Rétturinn er bestur daginn eftir.

🌹

Fleira áhugavert:

–  Ananasostakaka  –  Sítrónukjúklingur  –  Heill kjúklingur í ofni  — Draumaterta dásamlega góð   – Riz à l’amande eftirréttur  – Vöfflur hin klassíska uppskrift   —  Skúffukaka sem klikkar ekki –  Hvað er kurteisi?   —  Snúðakakan góða   – 

Fyrri færslaEngifersíld – frískandi og bragðmikið síldarsalat
Næsta færslaHumar í hvítlaukssósu