Sítrónusmjör – Lemon Curd

Heimagert sítrónusmjör – silkimjúkt lemon curd með fersku sítrónubragði

3
Auglýsing
Sítrónusmjör – Lemon Curd
Sítrónusmjör – Lemon Curd

Sítrónusmjör – lemon curd

Heimagert sítrónusmjör er unaðslegt með ostum, kexi, pönnukökum, tertum og ristuðu brauði.

Sítrónusmjör, eða lemon curd, er silkimjúkt, ferskt og fallega gult krem sem má nota á ótal vegu. Það er dásamlegt með ostum og kexi, ofan á ristað brauð, með lummum, í pönnukökur, með grískri jógúrt, ofan á Pavlovu, í tertur, kökur og eftirrétti – eða bara beint úr krukkunni ef enginn sér til.

Auglýsing

SÍTRÓNUSMJÖRSÍTRÓNURPÖNNUKÖKURPAVLOVALUMMUR

🍋

Lemon Curd – sítrónusmjör

4 stór egg
1 1/3 bolli sykur
1 bolli ferskur sítrónusafi
175 g smjör
1 msk rifinn sítrónubörkur
1/2 tsk salt
gulur matarlitur, má sleppa

Þeytið egg og sykur vel saman. Bræðið smjörið í potti við vægan hita. Hellið eggjahrærunni saman við og bætið síðan við sítrónusafa, sítrónuberki, salti og matarlit ef hann er notaður. Hitið við lágan hita og þeytið stöðugt í um 10 mínútur, eða þar til blandan þykknar.

Hellið sítrónusmjörinu strax í gegnum sigti, kælið lítillega og setjið í hreinar krukkur. Skrúfið lokið strax á og geymið í kæli.

🍋

SÍTRÓNUSMJÖRSÍTRÓNURPÖNNUKÖKURPAVLOVALUMMUR

🍋

Við bjóðum líkast til Lemon curd
sem logagyllt seður hvern matarnörd,
því ofan á brauð má það alveg jeta
úr eggjum og smjeri að hætti Breta.

Höf: Páll Bergþórsson

Fleira áhugavert:

–  Sítrónukjúklingur  –  Heill kjúklingur í ofni  — Draumaterta dásamlega góð   – Riz à l’amande eftirréttur  – Vöfflur hin klassíska uppskrift   —  Skúffukaka sem klikkar ekki –  Hvað er kurteisi?   —  Snúðakakan góða   –  Skyrterta Maríu  – 

Fyrri færslaMarokkóskur saltfiskur með engifer og saffran
Næsta færslaSaltfiskbollur frá Portúgal

3 athugasemdir

Comments are closed.