
Hollt og mjög gott hjá Elínu Ósk
Elín Ósk Óskarsdóttir óperusöngkona geislar af heilbrigði sem aldrei fyrr, en fyrir nokkrum árum gekk hún í gegnum þrálát veikindi sem illa gekk að greina. Þegar loks fékkst útskýring á lasleika hennar bretti hún hressilega upp ermar eins og henni einni er lagið. Já, hún Elín Ósk gerir hlutina sko í botn.
Hún endurhugsaði mataræðið og fleira – með glimrandi góðum árangri. Með miklum aga fuku aukakílóin út í veður og vind og heilsan og röddin komu til baka. Með mikilli ánægju deilir hún hér hluta af því mataræði sem þau hjónin hafa tileinkað sér síðustu árin.
Þegar okkur bar að garði var Elín Ósk á fullu að undirbúa fjörtíu ára söngafmæli sitt sem verður haldið í Salnum í október nk. MEIRA HÉR.
— VEISLUR — ELÍN ÓSK — EFTIRRÉTTIR – – BRAUÐ — DRYKKIR — SALÖT — FRÆKEX — MATUR LÆKNAR —
.


Silkimjúk súkkulaði-lárperumús
2 stórar eða 3–4 meðalstórar lárperur
2 þroskaðir bananar
4 msk fljótandi kókósolía
4 msk hrákakó eða annað gott kakó
3 msk hunang
1 tsk vanilluextrakt eða vanilludropar
1/4 tsk Hymalayasalt eða sjávarsalt
3 msk möndlumjólk
Setjið lárperur, banana, kókosolíu, kakó, hunang, vanillu, salt og möndlumjólk í matvinnsluvél. Maukið þar til músin verður silkimjúk og kekkjalaus.
Þeytið um 3 dl rjóma.
Fersk bláber og jarðarber eða önnur ber.
Skiptið músinni í eina stóra skál eða nokkrar litlar skálar. Setjið þeyttan rjóma yfir músina og skreytið með ferskum berjum.
Skreytið eftir vild.

Hollustubrauð Elínar Óskar
4 dl gróft spelt (t.d. frá Muna)
1 dl haframjöl
1 msk lyftiduft
1 msk kanill
1/2 tsk salt (Himalayasalt)
1 bolli rúsínur
1 dl sólblómafræ
1 dl hörfræ
1 dl graskersfræ
2 msk hunang
Um 3 dl ylvolgt vatn
Hitið bakarofninn í 180°C
Setjið öll þurrefnin í skál og blandið saman. Bætið hunangi og vatni út í og hrærið þar til úr verður þykk deigblanda.
Klæðið brauðform með smjörpappír þannig að hann nái upp með hliðunum. Þá er auðvelt að lyfta brauðinu úr forminu þegar það hefur bakast.
Bakið brauðið í miðjum ofni í um 40 mínútur.
Fylgist með undir lok bökunartímans þar sem ofnar geta verið misjafnir.

Kjúklingabaunasalat
2 dósir soðnar kjúklingabaunir
2-3 msk ferskt dill (eftir smekk)
1 rauð paprika
1 rauðlaukur
safi úr einni sítrónu
1/2 dós af litlum súrum gúrkum
salt og pipar
4 msk mæjónes
Hellið vökvanum af kjúklingabaununum og stappið þær nokkuð gróft með gaffli eða kartöflustappara.
Saxið dillið, paprikuna, rauðlaukinn og súru gúrkurnar mjög smátt og setjið út á kjúklingabaunirnar.
Kreistið sítrónusafann yfir salatið, kryddið með salti og pipar, bætið mæjónesi saman við og hrærið öllu vel saman.
Salatið verður jafnvel enn betra ef það fær að standa í ísskáp í 30–60 mínútur áður en það er borið fram.

Frækex
1 msk heilhveiti
1 msk hafrar
50 g sólblómafræ
100 g sesamfræ
50 g graskersfræ
50 g hörfræ
1 tsk sjávarsalt
1/2 tsk mulinn svartur pipar
2 msk ólífuolía eða repjuolía
150-200 ml vatn (1 1/2 – 2 dl).
Hitið ofninn í 160°C á blæstri.
Blandið öllum innihaldsefnunum saman í skál. Látið bíða í 20 mínútur. Deigið á að vera eins og meðalþykkur grautur.
Dreifið deiginu á bökunarplötu með bökunarpappír eins þunnt og hægt er.
Best er að leggja annan bökunarpappír yfir og þrýsta á með höndunum. Fjarlægið svo efri pappírinn.
Bakið í um 40-45 mínútur. Fylgist með að kexið verði ekki of dökkt.
Látið kólna. Brjótið svo í litla bita eftir vild.
Hollustusafi
Þessi litríki hollustusafi er stútfullur af ferskum ávöxtum og grænmeti. Ananas, epli, appelsínur, gulrætur, sellerí, rauðrófa, engifer og sítróna mynda saman frískandi og bragðgóðan drykk sem gefur góða byrjun á deginum.
350 ml ferskur ananassafi
safi úr 5 eplum (um 500 ml)
safi úr 5 appelsínum (um 450 ml)
safi úr 4 sellerístilkar (um 100 ml)
safi úr 1 rauðrófu (um 50 ml)
safi úr 4 stórum gulrótum (um 350 ml)
5 cm langur og þykkur engiferbiti
1 sítróna
Setjið öll hráefnin í safapressu og úr þessari uppskrift ætti að koma ca. 1,8 lítrar af dásamlega bragðgóðum og næringarríkum safa.
Safinn er góður sem morgunhressing eða til að njóta yfir daginn.
Fleira áhugavert:
– Rabarbarasulta – Hægeldaðir lambaskankar – Vinsælustu brauðréttirnir á Albert eldar – Soðið hangikjöt og jafningur – Hrísgrjónagrautur á laugardegi – Fiskbollur – hin klassíska góða uppskrift – Skúffukaka sem klikkar ekki – Sykurbrúnaðar kartöflur – Hafragrautur – Draumaterta, dásamlega góð – Ostahorn, best nýbökuð —
