
Kaldur brauðréttur með rækjum og ananas – „rækjujukkið“
Nostalgía! Á afmælisdegi Huldu heitinnar, tengdamóður minnar, var rifjaður upp rækjuréttur sem sló alltaf í gegn hér á árum áður vegna þess hve ferskur hann er og gerir enn! Þetta er nokkuð stór uppskrift og má skipta í tvö minni form.
— BRAUÐRÉTTIR – SALÖT – RÆKJUR – KALDIR BRAUÐRÉTTIR —
.
Kaldur brauðréttur með rækjum og ananas – „rækjujukkið“
1 heilhveitibrauð
2 b mæjónes
1 dós sýrður rjómi
½ tsk aromat
½ dós ananaskurl
200 g rækjur
Skerið skorpuna af brauðinu og tætið á botninn í móti.
Blandið saman majónesi, sýrðum rjóma, aromat og ananaskurli og hrærið rækjurnar út í.
Hellið jukkinu ofan á brauðið.
Skreytið með röndum af (eða að vild):
skinku
3 litir paprika
Einnig má nota ofurlítið franskt sinnep til að skreyta.
Fleira áhugavert:
— Hollt og mjög gott hjá Elínu Ósk — Póstlistinn — Rommkúluterta — Kókosterta — Brún lagkaka — Rúgmjölspartar — Ásta Snædís býður í kaffi — Hægeldaðir lambaskankar — Steiktur fiskur í brúnni sósu og ávaxtagrautur með rjóma —
