Auglýsing
Mandarínumarmelaði Jóhönnu Þórhalls mandarínur tækkfærisgjafir TÆKIFÆRISGJÖF marmelaði jóhanna þórhallsdóttir jóhanna þórhalls jólin
Mandarínumarmelaði Jóhönnu Þórhalls er kjörið í tækifærisgjafir á aðventunni.

Mandarínumarmelaði a la Jóhanna

Jóhanna Þórhallsdóttir söngkona hefur alloft komið við sögu hér á blogginu. Það er hefð hjá henni að útbúa mandarínumarmelaði á aðventunni. „Það liggur sérstaklega vel á mér núna, ég er að undirbúa næstu sýningu sem verður í Galleríi Göngum” segir söngkonan sem í seinni tíð hefur mundað pensla með góðum árangri.

MANDARÍNURJÓHANNA ÞÓRHALLSMARMELAÐIJÓLINTÆKIFÆRISGJAFIRNEGULNAGLARSTJÖRNUANÍS

.

Jóhanna og Albert

Mandarínumarmelaði

1,6 kg mandarínur
1 1/2 sítróna
800 g sykur (má vera sykur með hleypi)
3 stjörnuanísar
10 negulnaglar

Skolið mandarínur og sítrónur vel, skerið í grófa bita og maukið (samt ekki of fínt). Setjið allt í pott og sjóðið í um 10 mín.
Veiðið negulnagla og stjörnuanís uppúr, setjið marmelaðið á krukkur.

ATH. það á að nota bæði börkinn af mandarínunum og sítrónunum.

MANDARÍNURJÓHANNA ÞÓRHALLSMARMELAÐIJÓLINTÆKIFÆRISGJAFIRNEGULNAGLARSTJÖRNUANÍS

.

Auglýsing