
Döðlustykki
Með kaffinu í eftirminnilegri heimsókn í Menningarhúsið Berg á Dalvík fengum við döðlustykki með kaffinu hjá heiðurshjónunum Grétu og Júlla. Óskaplega bragðgóður og mjúkur heilsubiti.
Þetta er uppskrift sem tekur stuttan tíma að útbúa og hentar vel þegar mann langar í eitthvað sætt án þess að fara í flókinn bakstur. Döðlustykkin geymast vel í kæli og eru því tilvalin að eiga tilbúin fyrir gestakomur, kaffiboð eða síðdegiskaffið.
Einfalt, gott og alltaf vinsælt.
.
— DALVÍK — DÖÐLUR — HEILSU… — JÚLLI JÚLL —
.
Döðlustykki
1,5 b smátt skornar döðlur
1,5 b kókosmjöl
1, 5 b dökkt súkkulaði, saxað gróft
1 b hrásykur
5 msk spelt
1, 5 tsk lyftiduft
1,5 msk vanilludropar
1/2 tsk salt
5 msk vatn
3 egg
Blandið öllu saman, látið bíða í 30 mín við stofuhita. Bakið á ofnplötu við 150°C í c.a 40 mín. Látið kólna og skorið í litla bita.

Fleira áhugavert:
–- Draumaterta dásamlega góð — Hvítlaukskartöflur Helgu – Heill kjúklingur í ofni, mjöööög góður – Múffur með eplum og haframjöli – Vínartertan góða og fræga – Sælgætismolar — Salat með eggjum og beikoni —

