
Ólafur og hrossakjötið
Í gömlum sveitasamfélögum lifðu sögur af fólki kynslóð fram af kynslóð. Sumra er minnst fyrir dugnað, annarra fyrir kímnigáfu og svo lifa sögur af sérvisku eða óvenjulegum matarvenjum. Í ritum Eiðs Guðmundssonar bónda á Þúfnavöllum í Hörgárdal um mannlíf og búsetu í Skriðuhreppi forna er að finna fjölda slíkra frásagna. Eiður lagði sig fram um að skrá ekki aðeins nöfn og ættir heldur einnig sögur sem lýstu fólkinu eins og það birtist í minningum samtímamanna.
Ein þeirra segir frá Ólafi sem þótti hafa einstakt dálæti á hrossakjöti. Frásögnin er stutt en skemmtileg og gefur innsýn í bæði matarhætti og viðhorf fyrri tíma. Það er einmitt svona efni sem gerir byggðasögur og mannlýsingar svo lifandi – þar birtast einstaklingarnir sem raunverulegt fólk af holdi og blóði, með sína kosti, galla og sérkennilegu siði.
— HÖRGÁRDALUR — HROSSAKJÖT — KJÖT — ÞÚFNAVELLIR —
.
Ólafur og hrossakjötið
Ólafur Matthíasson f.1792 bjá á Barká frá 1823-1846, annars staðar bjó hann ekki. Kona hans var Guðrún Jónsdóttir frá Laugalandi, yfirsetukona. Ólafur var fátækur alla ævi og sóði. Fór mjög milli bæja, en vann lítið. Var hann síkátur og þótti sums staðar til skemmtunar. Hann var mesta hrossaketsæta sveitarinnar og var fyrirlitinn af mörgum þess vegna. Fékk hann á hverju ári eitthvað af afsláttarhrossum og stundum mörg. Eitt haustið voru þau níu. Þá þraut hann ílát undir ketið, en dó ekki ráðalaus yfir því, en gerði sér hægt um hönd og risti upp grundartorfu, hringaði hana og reisti á rönd á eldhúsgólfinu og saltaði þar í afganginn af ketinu. En ekki fer nokkrum sögum af því hversu munntamt það var.
Ólafur varð gamall og lenti síðast á hreppnum
Skamman spöl út frá mótum Barkár og Hafrár er bærinn Barká. Það var talin tæplega meðaljörð að landkostum, víðlendi er þar nokkurt, því að norðurkjálki Hafrárdals liggur þar undir. Á Barká bjuggu oft fátækir menn, þó að líka væru þar bjargálna bændur öðru hvoru.
– Búskaparsaga í Skriðuhreppi forna. Eiður Guðmundsson, Þúfnavöllum
.
Fleira áhugavert:
— Múffur með eplum og haframjöli — Döðlukonfekt, gott, gott — Mál og vog – helstu skammstafanir í uppskriftum — Svangi Mexíkaninn besti brauðrétturinn – Kryddbrauð mömmu – Fiskbollur – hin klassíska góða uppskrift – Hægeldaðir lambaskankar – Hafragrautur — Veislur hjá A&B — Póstlistinn —
