Gamaldags heilhveitibrauð

Einfalt heilhveitibrauð án gers og hefunar

0
Auglýsing
Einfalt og fljótlegt heilhveitibrauð með vínsteinslyftidufti – ekkert ger, ekkert hnoð og engin hefun.

Gamaldags heilhveitibrauð

Einfalt og fljótlegt heilhveitibrauð með vínsteinslyftidufti – ekkert ger, ekkert hnoð og engin hefun.

Gamaldags heilhveitibrauð er sáraeinfalt og gott hversdagsbrauð sem tekur aðeins örfáar mínútur að hræra saman. Það þarf hvorki að hnoða deigið né bíða eftir að það hefist, því vínsteinslyftiduft er notað í stað gers.

Auglýsing

Brauðið er þétt, bragðgott og saðsamt. Það er sérstaklega gott nýbakað með smjöri, osti eða heimalagaðri kæfu. Einnig má skera það í sneiðar og frysta, svo alltaf sé hægt að grípa í gott heimabakað brauð.

Nota má haframjólk og verður brauðið þá vegan. AB-mjólk eða nýmjólk hentar einnig vel.

–  BRAUР – HEILHVEITI  – VEGAN  – KÆFA  – VÍNSTEINSLYFTIDUFT  –

.

Gamaldags heilhveitibrauð

Gamaldags heilhveitibrauð

500 g heilhveiti
3½ tsk. vínsteinslyftiduft
2½ tsk. salt
½ l haframjólk, AB-mjólk eða nýmjólk

Hitið ofninn í 170°C, án blásturs.

Blandið heilhveiti, vínsteinslyftidufti og salti saman í skál. Hellið mjólkinni út í og hrærið þar til deigið er jafnt. Ekki þarf að hræra lengur en svo.

Klæðið brauðform með bökunarpappír og setjið deigið í formið. Jafnið yfirborðið.

Bakið brauðið í um eina klukkustund. Takið það úr forminu og látið kólna á grind áður en það er skorið.

Fleira spennandi:

— Sósur  – Sítróna  – Kurteisi og borðsiðir  – Eftirréttir  – Snúðar  – Kínóa  – Frakkland –

Fyrri færslaKaffihlaðborð í anda Djúpmannabúðar
Næsta færslaHafrakex mömmu