Pylsuvagninn Akureyri

Bestu pylsurnar á Akureyri – klassískar, djarfar og líka til veganpylsur

0
Auglýsing
Þorgeir og Albert við Pylsuvagninn í göngugötunni á Akureyri

Pylsuvagninn Akureyri

Úrvalið í Pylsuvagninum í göngugötunni á Akureyri er með því fjölbreyttasta sem ég hef séð í þessari tegund götubita sem sumir vilja kalla þjóðarrétt Íslendinga. Meðal þess vinsælusta á matseðlinum er sjálfur „Akureyringurinn“ með öllu — þessi með rauðkálinu — pylsa með gráðaosti og svo nýjasta uppáhaldið mitt: Eldfjallapylsan.

Einnig er hægt að fá pylsur með kartöflusalati, beikoni, kokteilsósu og bökuðum baunum, auk þess sem úrvalið af veganpylsum er sérlega gott og vel útfært.

Auglýsing

Hjónin Þorgeir Sólveigarson og Helena Halldórsdóttir reka Pylsuvagninn. Þau segja að pylsa í brauði sé líklega vinsælasti götubiti á Íslandi — klassísk samsetning með remúlaði, tómatsósu, sinnepi og lauk. En í Pylsuvagninn fær þessi þjóðarréttur nýjan og skemmtilegan blæ. Látið koma ykkur á óvart næst þegar þið eigið leið um göngugötuna á Akureyri.

AKUREYRIPYLSURRAUÐKÁLÞORGEIR ÓLAFSSONSTREET FOOD

.

Eldfjallapylsa með öllu
Akureyringur, pylsa með gráðaosti og pylsa með súrum gúrkum.

Fleira áhugavert:

Hægeldaðir lambaskankar —  Heill kjúklingur í ofni — Draumaterta dásamlega góð – Hrísgrjónagrautur á laugardegi – Vöfflur hin klassíska uppskrift – Soðin egg  —  Skúffukaka sem klikkar ekki –  Hvað er kurteisi?  —  Snúðakakan góða  –  Kryddbrauð mömmu  – Heitur brauðréttur Önnu Siggu

Fyrri færslaKalt kartöflusalat með ólífum, fetaosti og beikoni
Næsta færslaMerkingar á hlaðborðum