Borðsiðir Helgu Sigurðardóttur
Í hinni ágætu bók Matur og drykkur eftir Helgu Sigurðardóttur, sem kom fyrst út árið 1947 og hefur verið endurútgefin margoft síðan, er kafli um borðsiði. Sumt sem þar er ritað er enn í góðu gildi.
— HELGA SIGURÐAR — HNÍFAPÖR — BORÐSIÐIR/KURTEISI — ÍSLENSKT —
.
- Komið ætíð hrein og snyrtilega klædd til máltíða. Mætið stundvíslega
- Sitjið rétt, hæfilega langt frá borðinu og hafið fæturna við stólinn. Leggið handleggina ekki á borðið. Takið ekki of mikið í einu af fatinu og ekki eingöngu það, sem ykkur þykir gott, eða bestu bitana. Skiljið ekki eftir.
- Jafnvel þó að yður falli ekki sá réttur, sem fram er borinn, eða þér þekkið hann ekki, þá takið af honum og borðið. Það er ekki háttvísi að setja, að yður langi ekki í þetta.
- Matist eins hljóðlega og hægt er og tyggið með lokuðum munni. Sötrið ekki.
- Súpan er borðuð úr hlið skeiðarinnar, en grauturinn úr henni beinni. Ekki má blása á matinn til þess að kæla hann og ekki taka diskinn upp með hendinni. Haldið ekki of neðarlega á skeið, hníf eða gaffli.
- Látið hnífinn aldrei upp í yður, borðið með gafflinum.
- Talið ekki með mat upp í yður. Teygið yður ekki yfir borðið eða sessunaut yðar, biðjið heldur um að rétta yður það, sem þér óskið eftir.
- Sérhver verður að gefa því gætur, að sessunaut hans skorti ekkert, og sérstaka athygli verður að viðhafa, þegar gestir eru.
- Það er ekki kurteisi að stanga úr tönnum, þegar aðrir sjá til.
- Ekki er háttvísi að lesa við borðið.
— HELGA SIGURÐAR — HNÍFAPÖR — BORÐSIÐIR/KURTEISI — ÍSLENSKT —
.