![Aðalbláberjabaka – alveg himnesk og á alltaf við Aðalbláberjabaka – alveg himnesk og á alltaf við bláber Bláberjabaka, aðalbláber, svarfvaðardalur, Helga Bryndís magnúsdóttir kaffimeðlæti pæ baka pæja pai paj ber berjabaka bláber](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2014/10/P1015276.jpg?resize=696%2C522&ssl=1)
Aðalbláberjabaka
Þessi baka er alveg himnesk og á alltaf við – sumar, vetur, vor og haust. Aðalbláberin í bökuna sem Helga Bryndís kom með í föstudagskaffið eru úr Svarfaðardal en auðvitað má nota bláber. Brettið upp ermar og bakið 🙂
.
— FÖSTUDAGSKAFFIÐ — BLÁBER — FÖSTUDAGSKAFFIÐ —
.
Aðalbláberjabaka
Botn
200 g hveiti
100 g smjör
2 msk sykur
1 msk vatn
1 eggjarauða
salt á hnífsoddi
Fylling:
4 dl (aðal)bláber
1 tsk kartöflumjöl
2 msk sykur
Botn: Hrærið vel saman í hrærivél og þjappið í bökuform.
Fylling: Blandið saman berjum, kartöflumjöli og sykri og setjið ofan á bökudeigið. Bakið við 200° (allavega) í u.þ.b. 20 mín ( kannski meira )
.
![Aðalbláberjabaka – alveg himnesk og á alltaf við Aðalbláberjabaka – alveg himnesk og á alltaf við](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2014/10/P1015283.jpg?resize=696%2C522&ssl=1)
.
— BLÁBER — BÖKUR — HELGA BRYNDÍS — FÖSTUDAGSKAFFIÐ —
.