Kokkeriet veitingahúsið í matarborginni Kaupmannahöfn flaggar Michelin stjörnu og það ekki að ástæðulausu. Svei mér þá ég hélt að gleði mín yfir góðum mat yrði ekki toppuð en það gerðist á Kokkeriet. Réttirnir voru hver öðrum ólíkir að bragði og útliti. Það er ekki að ástæðulausu sem veitingastaður eins og þessi fær stjörnu frá Michelin. Ólýsanlega góður matur, þjónustan er vönduð og látlaus á fallegum veitingastað sem vel má mæla með.
Reyktur áll, radísa, kapers og tómatvatn #kokkeriet#kokkerietRúgbrauð glóðað, andar- svínafita með kjúklingalifrarbitum, rauðrófu-jelly #kokkerietNaan með geitarosti, rabarbara og kornhænu #kokkerietSoðið bjórþykkni, ristað rúgbrauðsmjöl, súkkulaði, pistasíumjöl, verbenaolíurjómi og plómusafi #kokkerietPönnukaka með krabba, sítrónu og stökkum kartöflum #kokkerietÍ brauði var tvenns konar hveiti, frá Manitoba og Jótlandi og karameliserað smjör með. #kokkerietSavoy kálböggull, inni í var hörpuskel og hvítkál og hvítt smjör (beurre blanc) og graskersfræ #kokkerietHumar á teini með niðursoðnum skeljum og stikilsberjum #kokkerietPorcinisveppakæfa, súrsaður laukur, með gulum rauðrófum #kokkerietRauðrófa hrá og bökuð, geitaostur, trufla, timian- og kirsuberjasíró, borið á reykjarkolum #kokkerietSellerírót, sandhverfa og bjarnarlauk (ramson) #kokkerietBoeuf Marlon með steinselju, kálfakjöt rifið og laukur í skel #kokkerietPera, furuolía kavíar og sorbet #kokkeriet