EY COLLECTION. Eva Dögg, Páll og Þorbjörg í gallerýinu. Þær voru sannfærðar um að LÆKin og deilingarnar yrðu mun fleiri með Pál á mynd (viljið þið gefa þeim LIKE og deila)
EY COLLECTION. Gamla fjósinu í Garðakoti breyttu Eva Dögg Þorsteinsdóttir og Þorbjörg Kristjánsdóttir í gallerý og opna vinnustofu. Það er aðeins nokkra mínútna akstur frá þjóðvegi 1 til þeirra (á leiðinni að Dyrhólaey) og vel þess virði. Eva og Þorbjörg hanna og framleiða vörur sem hafa allar tengingu í náttúru og menningu nærumhverfisins.
Ungbarnahúfa með æðadúnsvermiEva segir Páli þjóðsöguna af tröllkonunni Kötlu, sögu sem hún myndskreytti og er fyrir aftan hana á myndinniVerk í vinnslu. Eva málar mynd af síðustu förukonunni á Íslandi, Vigdísi Ingvadóttur(1864-1957)Kerti og servíettur frá Ey CollectionÞjóðleg kerti og eldspýturÞjóðlegur eldspýtustokkurTækifæriskort
Gaman er að keyra út í Dyrhólaey og koma við hjá Evu og Þorbjörgu í Garðakoti